Enski boltinn

Eiður Smári skoraði í jafntefli Bolton

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eiður Smári skorar í kvöld.
Eiður Smári skorar í kvöld. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen var hársbreidd frá því að vera hetja Bolton í kvöld þegar liðið gerði jafntefli, 1-1, við Reading í ensku B-deildinni í fótbolta.

Bolton-menn hrundu niður hver á fætur öðrum í fyrri hálfleik og kom Eiður Smári inn á sem þriðji varamaður á 44. mínútu. Lennon búinn með allar skiptingarnar.

Eiður Smári skoraði svo á 60. mínútu og kom heimamönnum yfir, en Bolton fékk á sig jöfnunarmark á 90. mínútu. Það skoraði Jamie Mackie. Lokatölur, 1-1.

Þetta er þriðja markið sem Eiður Smári skorar fyrir Bolton síðan hann gekk aftur í raðir liðsins, en Bolton er í 17. sæti með 40 stig eftir leikinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×