Enski boltinn

Eiður Smári í byrjunarliði Bolton í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Vísir/Getty
Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Bolton í kvöld þegar liðið mætir Millwall á útivelli í ensku b-deildinni. Þetta kemur fram twitter-síðu félagsins.

Þetta er fyrsti leikur Eiðs Smára í byrjunarliðinu síðan að hann snéri aftur til félagsins eftir fjórtán ára fjarveru en hann kom inná sem varamaður um síðustu helgi.

Eiður Smári er fremsti maður en fyrir aftan hann eru þeir Robert Hall, Liam Feeney og Chung-Yong Lee.

Bolton hefur ekki tapað í síðustu sex leikjum sínum en undanfarnir tveir leikir liðsins hafa endað með markalausu jafntefli.

Bolton hefur ekki fengið á sig mark í síðustu þremur leikjum en vantar að skora mörk og þar kemur Eiður Smári vonandi sterkur inn í kvöld.

Byrjunarlið Bolton: Lonergan, Vela, Mills, Dervite, Ream, Danns, Pratley, Feeney, Hall, Lee og Eiður Smári Guðjohnsen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×