Enski boltinn

Eiður Smári ánægður með frammistöðu Heskey á æfingum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen hefur hrifist af frammistöðu framherjans Emile Heskey á æfingum Bolton að undanförnu.

Eiður Smári samdi nýverið við Bolton til loka tímabilsins en Heskey, sem er án félags, hefur æft með félaginu síðustu vikurnar.

„Hann hefur lítið breyst. Hann lætur enn til sín taka og ef hann hefur hungrið og vill spila þá vildi ég gjarnan fá hann til okkar,“ sagði Eiður Smári við fjölmiðla í Englandi.

„Öll samkeppni er af hinu góða fyrir leikmannahópinn, hvort sem hann komi eða ekki. Við þurfum heilbrigða samkeppni til að ná því besta úr okkur.“

Heskey er 36 ára gamall og hefur leikið með Leicester, Liverpool, Birmingham, Wigan, Aston Villa og nú síðast Newcastle Jets í Ástralíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×