Fótbolti

Eiður Smári: Væri eins og ég skrifaði handritið sjálfur ljúki ég ferlinum á EM

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eiður Smári spilaði stórvel með Bolton.
Eiður Smári spilaði stórvel með Bolton. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í fótbolta frá upphafi, átti enn einn stórleikinn á Bretlandseyjum í gær, en að þessu sinni utan vallar.

Eiður var fenginn sem sérfræðingur Sky Sports á leik Chelsea og Crystal Palace um helgina þar sem lærisveinar José Mourinho tryggðu sér Englandsmeistaratitilinn. Eiður hefur áður verið sérfræðingur og Sky og fengið mikið lof fyrir.

Eftir útsendinguna ræddi hann við Ed Chamberlain, íþróttafréttamann Sky Sports, um Chelsea-liðið og sinn eigin feril, en Eiður vann auðvitað tvo Englandsmeistaratitla með Chelsea.

„Tilfinning í kringum liðið er sú sama og þegar ég var hérna,“ sagði hann er hann horfði á sína fyrrverandi liðsfélaga fagna Englandsmeistaratitlinum.

„Meira að segja sumir leikmannanna sem spiluðu þegar ég var hérna eru enn hluti af liðinu sem er frábært. Ég sé John Terry og Didier Drogba fagna. Svo er Petr Cech hérna og auðvitað José. Ég verð að viðurkenna þetta vekur upp gamlar og góðar minningar.“

„Þegar maður er að spila og maður er enn hjá félaginu áttar maður sig ekki á hvað þetta þýðir allt saman. Þegar maður yfirgefur félagið áttar maður sig á að það verður að halda í minningarnar,“ segir Eiður Smári.

Eiður Smári vann tvo Englandsmeistaratitla með Chelsea.vísir/getty
Eiður Smári samdi við Bolton seint á síðasta ári og fór á kostum með liðinu í B-deildinni. Það vill semja við hann aftur.

Dvöl hans hjá Bolton varð til þess að Eiður Smári sneri aftur í íslenska landsliðið, en hann skoraði í endurkomuleik sínum gegn Kasakstan í lok mars.

„Ég gjörsamlega elska að vera kominn aftur. Ég sneri aftur fyrir mánuði síðan og það fékk mig til að átta mig á að maður fær bara einn fótboltaferil. Það er eins gott að njóta hans eins lengi og hægt er.“

„Ég er í líkamlega góðu standi og ekkert meiddur. Á meðan ég get stundað fótbolta ætla ég að gera það eins lengi og ég get.“

Eiður Smári skoraði gegn Kasakstan.vísir/ap
Eiður lofsamar íslenska landsliðið og segir það eina helstu ástæðu þess að hann ætlar að halda áfram að spila fótbolta.

„Það veitti mér mikla ánægju að snúa aftur í landsliðið og við erum í góðri stöðu með að tryggja okkur farseðilinn á EM. Það er gulrót fyrir mig til að halda áfram,“ segir Eiður Smári.

„Við vorum svo nálægt því að komast á HM en töpuðum fyrir Króatíu í umspilinu. Þetta er það eina ég á eftir að upplifa á mínum ferli.“

„Ísland hefur aldrei komist á stórmót þannig að vera hluti af því og enda ferilinn á þeim nótunum væri eins og ég hefði skrifað handritið sjálfur,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen.

Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×