Fótbolti

Eiður Smári: Þetta er stærsti leikur minn á ferlinum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiður Smári hefur orðið Englandsmeistari, Spánarmeistari og unnið Meistaradeild Evrópu.
Eiður Smári hefur orðið Englandsmeistari, Spánarmeistari og unnið Meistaradeild Evrópu. vísir/vilhelm
Eiður Smári Guðjohnsen segir leikinn gegn Austurríki á Evrópumótinu í Frakklandi hans stærsta á löngum ferli. 

„Ég hef tekið þátt í nokkrum stórum leikjum á ferlinum mínum. Enginn þeirra jafnast á við þennan,“ segir Eiður Smári, markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi.

„Þetta er okkar augnablik,“ segir Eiður Smári sem birtir mynd af treyju sinni í klefanum á Stade de France með myndinni. 

Ólöf Einarsdóttir, móðir Eiðs Smára, segir að það væri það besta í lífinu ef Eiður Smári myndi skora sigurmarkið í leiknum.



 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×