Fótbolti

Eiður Smári: Megum ekki halda að við séum of góðir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leiknum í dag.
Eiður Smári í leiknum í dag. Vísir/Vilhelm
Eiður Smári Guðjohnsen segir að það megi ekki gera of mikið úr jafnteflinu gegn Lettlandi í dag þó svo að úrslitin hafi verið vonbrigði.

Eftir frábæra byrjun komu Lettarnir til baka og skoruðu tvívegis framhjá Hannesi Þór Halldórssyni, sem var búinn að fá á sig þrjú mörk í síðustu átta mótsleikjum á undan.

„Það má eiginlega segja að mér og okkur öllum líði eins og við höfum tapað leiknum miðað við hvernig leikurinn þróaðist,“ sagði Eiður Smári eftir leikinn.

„Ég held að þetta sé ágætisvatnsgusa. Við megum ekki halda að við séum orðnir betri en við erum. Það er auðvitað margt sem spilar inn í en seinni hálfleikur var auðvitað engan veginn nógu góður.“

„Ég veit ekki hvort að það hafi verið orkuleysi í okkur eða að við höfum verið aðeins of afslappaðir. Það var greinilegt að við vorum vel á tánum í fyrri hálfleik, unnum alla seinni bolta og vorum djarfari með liðið fram á við.“

„Í seinni hálfleik mynduðust aðeins of stór svæði og þeir fengu að taka boltann aðeins of auðveldlega oft á tíðum. Þá skoruðu þeir tvö mörk á okkur.“

Eftir að Ísland komst í 2-0 leit út fyrir að Ísland myndi vinna stórsigur í leiknum en Eiður segir að það megi ekki missa einbeitinguna.

„Það er einmitt sú tilfinning sem kemur í bakið á okkur. En við megum ekki gera of mikið úr þessu. Þetta er bara eitthvað sem við þurfum að líta á. Þetta getur líka verið ágætislærdómur fyrir okkur.“

Stuðningsmenn Íslands voru frábærir í leiknum rétt eins og áður í þessari undankeppni. Eiður segir að það hafi verið synd að hafa ekki kvatt þá með betri hætti en þetta var síðasti heimaleikur Íslands í riðlakeppninni.

„Við höfum verið að duglegir að hrósa áhorfendum og þakka fyrir okkur. Við gerum það enn og aftur. Auðvitað erum við endalaust þakklátir fyrir þennan góða stuðning.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×