Enski boltinn

Eiður á enn tvö bestu tímabilin | Gylfi komst upp í 3. sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar marki með Chelsea.
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar marki með Chelsea. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson átti svo sannarlega magnað tímabil í ensku úrvalsdeildinni í vetur en hann náði samt ekki að komast hærra en í þriðja sætið yfir marksæknasta íslenska leikmanninn á einu tímabili í ensku deildinni.

Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór endaði í þriðja sæti yfir flestar stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni á eftir þeim Cesc Fabregas (18) og Santiago Cazorla (11) og hann var aðeins tveimur mörkum frá því að vera markahæsti leikmaður Swansea-liðsins.

Þessi frábæra frammistaða Hafnfirðingsins kemur honum þó ekki ofar en í þriðja sætið. Eiður Smári Guðjohnsen skipar nefnilega áfram tvö efstu sæti listans en er ekki lengur í fjórum efstu sætunum eins og fyrir tímabilið.

Eiður Smári átti tvö frábær tímabil í ensku úrvalsdeildinni með þriggja ára millibili og tvö af þremur í millitíðinni komast einnig inn á topp fimm.

Besta tímabil Eiðs Smára var 2001-02 þegar hann kom að 20 mörkum Chelsea með því annaðhvort að skora (14 mörk) eða að leggja upp mark fyrir félaga sína (6 stoðsendingar). Eiður Smári fór þarna á kostum með Jimmy Floyd Hasselbaink í framlínunni. Hasselbaink var sjálfur með 23 mörk, mörg þeirra eftir sendingar Eiðs.

Eiður Smári átti ekki síðra tímabil þremur árum síðar, 2004-05, en það var fyrsta tímabil liðsins undir stjórn Jose Mourinho og jafnframt í fyrsta sinn í fimmtíu ár sem Chelsea varð enskur meistari.

Eiður Smári kom þá að 19 mörkum Chelsea með því annaðhvort að skora (12) eða að leggja upp (7 stoðs.).

Gylfi komst ekki á toppinn en braut einokun Eiðs Smára á efstu fjórum sætum listans. Eiður Smári og Gylfi hleypa engum inn á topp sex á þessum lista og Gylfi á þar einnig hálfa tímabilið sitt frá 2011-12, þegar hann kom að 11 mörkum í átján leikjum.

Bestu tímabil Íslendings í ensku úrvalsdeildinni (mörk + stoðsendingar):

1) 20 mörk

Eiður Smári Guðjohnsen

Chelsea 2001-02

14 mörk

6 stoðsendingar

- Kom að 30 prósentum af mörkum Chelsea (66)



2) 19 mörk

Eiður Smári Guðjohnsen

Chelsea 2004-05

12 mörk

7 stoðsendingar

- Kom að 26 prósentum af mörkum Chelsea (72)

3) 17 mörk

Gylfi Þór Sigurðsson

Swansea 2014-15

7 mörk

10 stoðsendingar

- Kom að 37 prósentum af mörkum Swansea (46)

4) 16 mörk

Eiður Smári Guðjohnsen

Chelsea 2000-01

10 mörk

6 stoðsendingar

- Kom að 24 prósentum af mörkum Chelsea (68)

5) 12 mörk

Eiður Smári Guðjohnsen

Chelsea 2002-03

10 mörk

2 stoðsendingar

- Kom að 18 prósentum af mörkum Chelsea (68)

6) 11 mörk

Gylfi Þór Sigurðsson

Swansea 11-12

7 mörk

4 stoðsendingar

- Kom að 46 prósentum af mörkum Swansea (24) eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×