Fótbolti

Eiður, Jóhann Berg og Birkir Már inn í byrjunarliðið

Óskar Ófeigur Jónsson í Kasakstan skrifar
Þessir byrjuðu fjóra fyrstu leiki Íslands í undankeppninni.
Þessir byrjuðu fjóra fyrstu leiki Íslands í undankeppninni. Mynd/KSÍ
Landsliðsþjálfararnir Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn á móti Kasakstan í Astana í dag.

Þetta er fimmti leikur Íslands í riðlinum en jafnframt sá fyrsti sem er spilaður á árinu 2015. Leikurinn hefst klukkan 15.00 að íslenskum tíma en þá er klukkan orðin níu í Kasakstan.

Heimir og Lars gera þrjár breytingar á liðinu sem hefur byrjað fyrstu fjóra leiki Íslands í undankeppni EM 2016.

Theodór Elmar Bjarnason er meiddur og er því ekki með í Kasakstan og þá fara þeir Jón Daði Böðvarsson og Emil Hallfreðsson á bekkinn.

Í stað þeirra Theodórs Elmars, Emils og Jón Daða koma inn í liðið þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Birkir Már Sævarsson og Jóhann Berg Guðmundsson.

Eiður Smári Guðjohnsen spilar þar með sinn fyrsta landsleik í sextán mánuði en hann hefur ekkert verið með liðinu frá því í Króatíu í nóvember 2013.



Byrjunarlið Íslands á móti Kasakstan:

Markvörður: Hannes Þór Halldórsson

Hægri bakvörður: Birkir Már Sævarsson

Miðverðir: Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson

Vinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason

Hægri kantur: Birkir Bjarnason

Miðjumenn: Aron Einar Gunnarsson (fyrirliði) og Gylfi Þór Sigurðsson

Vinstri kantur: Jóhann Berg Guðmundsson

Framherjar: Kolbeinn Sigþórsson og Eiður Smári Guðjohnsen








Fleiri fréttir

Sjá meira


×