Fótbolti

Eibar hafði betur í Baskaslag | Alfreð ekki með

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nýliðar Eibar fagna marki Javi Lara.
Nýliðar Eibar fagna marki Javi Lara. Vísir/Getty
Real Sociedad beið óvæntan ósigur gegn nýliðum Eibar í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Javi Lara skoraði eina mark leiksins á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Eibar er að leika sitt fyrsta tímabil í efstu deild, en þetta litla lið frá Baskalandi vann 2. deildina í fyrra.

Alfreð Finnbogason lék ekki með Sociedad í kvöld, en hann er enn að jafna sig eftir að hafa farið úr axlarlið fyrr í mánuðinum.

Þess má einnig geta að allir 22 leikmennirnir sem byrjuðu inn á leiknum í kvöld eru Spánverjar.


Tengdar fréttir

Alfreð fór úr axlarlið - Real Sociedad komst áfram

Alfreð Finnbogason og félagar í spænska liðinu Real Sociedad eru komnir áfram í umspil um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar eftir 3-2 útisigur á skoska liðinu Aberdeen í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×