Menning

Egill Sæbjörnsson næsti fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Egill Sæbjörnsson verður í íslenska skálanum í Feneyjartvíæringnum á næsta ári.
Egill Sæbjörnsson verður í íslenska skálanum í Feneyjartvíæringnum á næsta ári. Vísir/Anton Brink
Listamaðurinn Egill Sæbjörnsson hefur verið valinn til þess að vera framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum á næsta ári. Það verður í 57. skipti sem listahátíðin er haldin. Sýning Egils verður unnin í samstarfi við Stefanie Böttcher sýningarstjóra.

Egill Sæbjörnsson er 43 ára og hefur starfað sem fjöllistamaður í mörg ár. Verk hans samanstanda oft af einhvers konar samblöndu raunverulegra hluta og tálsýnar. Egill er allt í senn; myndlistarmaður, gjörningalistamaður og tónlistarmaður. Eftir hann liggja fimm breiðskífur og enn má heyra sum laga hans spiluð í útvarpi hérlendis.

Árið 2010 var Egill tilnefndur til Carnegie listaverðlaunanna og má finna sum myndlistarverka hans í einkasöfnum. Egill hefur gefið út þrjár bækur með verkum sínum. Oft er töluverða kímni að finna í verkum Egils sem aldrei eru þó laus við djúphugsun.

Ekki vitað hvað Egill ætlar að gera

Það var Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sem tilkynnti um val dómnefndar. Ekki er vitað hvað Egill ætlar sér að bjóða upp á í íslenska skálanum í Feneyjum á næsta ári nema að áhorfendur verða hluti af verkinu sjálfu um leið og þeir stíga inn í skálann.

Það var fagráð Kynningarmiðstöðvar sem sá um valið en það samanstóð að þessu sinni af Björgu Stefánsdóttur, Hlyni Hallssyni, Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur, Aðalheiði Guðmundsdótturog Libiu Castro.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×