Tónlist

Egill fær ungu kynslóðina í lið með sér

Högni Egilsson og Lay Low verða gestasöngvarar á afmælistónleikum Egils.
Högni Egilsson og Lay Low verða gestasöngvarar á afmælistónleikum Egils.

Í tilefni sextugsafmælis Egils Ólafssonar verða haldnir afmælistónleikar í Hörpu 26. október.

Egill hefur fengið til liðs við sig hljómsveitina Moses Hightower og munu þau koma fram sem ein heild og flytja lagabálk söngvarans.

„Moses Hightower er eitt af mínum uppáhaldsböndum. Sveitin ætlar að taka lög eftir mig og setja þau út í stíl sem hentar henni. Svo kem ég og fæ að vera með,“ segir Egill. „Við munum hafa endaskipti á lögunum og endurskapa músíkina svolítið.“

Lay Low og Högni Egilsson verða gestasöngvarar. „Þau eru dálítið mínir uppáhaldssöngvarar. Þetta verður svolítið skemmtilegur fundur, get ég ímyndað mér.“

Eftir Egil liggur fjöldi vinsælla laga, með hljómsveitum á borð við Stuðmenn, Þursaflokkinn og Spilverk þjóðanna. Honum líst einkar vel á að starfa með ungu kynslóðinni á tónleikunum.

„Hún er svo fjölhæf og víðsýn þessi kynslóð að hún kann alla þessa músík fyrri ára.“ Tilkynnt verður um miðasölu síðar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×