Innlent

Eggjum grýtt í hús skólastjóra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Áslandsskóli hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna samnings Hafnarfjarðarbæjar við eigendur skólans.
Áslandsskóli hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna samnings Hafnarfjarðarbæjar við eigendur skólans. Vísir/Vilhelm/Daníel
Leifur S. Garðarsson, skólastjóri í Áslandsskóla í Hafnarfirði, greinir frá því að í annað skiptið á rúmu hálfu ári hafi eggjum verið kastað í hús hans. Hann segir það umhugsunarefni að í bæði skiptin hafi uppákoman átt sér stað um svipað leyti og fjölmiðlar fjalla um ákvarðanir tengdar prófasvindli nemenda skólans.

Hópur foreldra fyrrverandi nemenda við skólann, 10. bekkinga sem luku grunnskóla síðastliðið vor, hefur lagt fram stjórnsýslukæra þar sem kærð er ákvörðun fræsðluráðs Hafnarfjarðar um að samþykkja breytingar á skólanámskrá og skóladagatali 19. maí 2014. Leifur hafði frumkvæði að breytingunum eftir að nítján nemendum var tímabundið vikið úr skólanum vegna gruns um prófasvindl.

Nemendurnir voru sakaðir um að hafa komist yfir próf með því að fara í gegnum persónuleg gögn kennara. Voru teknar myndir af prófunum og þeim deilt í lokuðum hópi á Facebook-síðu. Stjórnandi síðunnar var boðaður á fund skólastjóra þar sem þess var óskað að hann skráði sig inn á síðuna og sýndi skólastjóranum hvað þar væri að finna. Var hann svo látinn loka síðunni án þess að tekin væru skjáskot eða myndir til sönnunar. Halda foreldrarnir því þannig fram að aldrei hafi sannast að drengirnir hafi brotið af sér.

Málið var tekið fyrir á fundi fræðsluráðs í síðustu viku en gögnin sem bárust frá innanríkisráðuneytinu vegna kærunnar má sjá í viðhengi hér að neðan.

Gerðu ekki mikið úr síðasta eggjakasti

„Það er ekki notaleg tilfinning þegar ráðist er inn í þá friðhelgi sem maður telur sig eiga rétt á í einkalífi,“ segir Leifur í færslu á Facebook. Eggjum hafi verið kastað í húsið í október og svo aftur í nótt.

Hann segir óneitanlega umhugsunarefni, án þess að vilja setjast í dómarasæti, að tímasetningarnar eigi það sameiginlegt að umræða sé í fjölmiðlum um ákvarðanir í tengslum við prófasvindl nemenda á síðasta skólaári.

„Þegar húsið var útatað í eggjum í október ákváðum við að gera ekki mikið úr, láta lögregluna vita og þrífa herlegheitin,“ skrifar Leifur.

Í þetta skipti hafi lögreglan brugðist skjótt við, komið á staðinn og farið yfir verksummerki. Leifur óskar eftir ábendingum um hver hafi staðið að eggjakastinu.

„Mér þykir ólíklegt að þeir einstaklingar sem þetta gera búi við vellíðan og ró í hjarta en ég óska þeim engu að síður gleðilegra páska.“

Ekki náðist í Leif við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Hafnfirðingar tapa milljörðum á samningi um Áslandsskóla

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar freistar þess nú að endursemja við fyrirtækið sem á og rekur Áslandsskóla á kostnað bæjarins. Skattgreiðendur í Hafnarfirði munu þegar upp verður staðið hafa tapað milljörðum króna á samningi um einkaframkvæmd vegna skólans. Að samningstíma loknum verður sveitarfélagið búið að greiða upp skólann án þess að eiga krónu í honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×