Ege ekki með Noregi á EM í Serbíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. desember 2011 12:15 Steinar Ege fagnar sigri eftir leik með norska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Norðmenn, sem eru með Íslandi í riðli á EM í Serbíu, verða án markvarðarins Steinars Ege í keppninni en hann hefur nú lagt landsliðsskóna á hilluna. Þetta tilkynnti norska handboltasambandið í morgun. Ege verður 40 ára gamall í apríl næstkomandi en er engu að síður samningsbundinn danska stórliðinu AG til loka tímabilsins 2014. Ege á að baki sextán ár með norska landsliðinu og 262 leiki. Hann hættir nú til að gefa yngri markvörðum tækifæri með liðinu. „Það var erfitt að taka þessa ákvörðun. Ég átti mér þann draum að vinna til verðlauna á stórmóti og spila á Ólympíuleikum. Ég hef verið lengi að ákveða mig en það er ljóst að líkaminn minn þolir ekki lengur það álag sem fylgir því að spila á stórmóti.“ Robert Hedin, landsliðsþjálfari Noregs, hefur skilning á ákvörðun Ege og segir að Ole Erevik hafi það sem til þurfi að verja mark liðsins. „Hann býr yfir mikilli reynslu og hefur allt það sem þarf til að standa sig mjög vel á EM,“ sagði hann. Ísland og Noregur eigast við í D-riðli þann 18. janúar næstkomandi. Ísland hefur leik gegn Króatíu og spilar svo gegn Slóveníu í lokaleik riðilsins.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira