Körfubolti

Ég vona að Lakers verði ömurlegt lið að eilífu

Mark Cuban.
Mark Cuban. vísir/getty
Það eru fáir sem gleðjast meir yfir hörmulegu gengi LA Lakers en Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks.

Lakers hefur aldrei byrjað tímabil eins illa í sögu félagsins og það hlakkar í Cuban.

„Ég vona að Lakers verði ömurlegt lið að eilífu," sagði Cuban í útvarpsviðtali en hann er vanur að tala beint frá hjartanu.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Cuban lýsir yfir andúð sinni á Lakers en það gerði hann líka er hann var spurður út í liðið fyrir upphaf tímabilsins 2012.

„Ég veit ekki hvernig þeir verða. Mér er líka alveg sama. Ég vona bara að liðið verði ömurlegt."

Cuban viðurkennir þó að þetta ástand verði líklega ekki viðvarandi enda hafi leikmenn áhuga á því að spila fyrir Lakers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×