Enski boltinn

Ég er myndarlegri en Ronaldo

Pelle er með allt á hreinu.
Pelle er með allt á hreinu. vísir/getty
Graziano Pelle hefur slegið í gegn í enska boltanum í vetur og ljóst að sjálfstraustið er í botni hjá honum.

Ítalinn hefur farið mikinn með spútnikliði Southampton í vetur og var meðal annars valinn leikmaður september-mánaðar í deildinni.

Hann er búinn að gefa út bók þar sem hann svarar yfir 1.000 spurningum og þar er margt áhugavert að finna.

Pelle er til að mynda spurður að því í bókinni hvor sé myndarlegri. Hann eða Cristiano Ronaldo?  „Ég er myndarlegri. Ronaldo er myndarlegur en ég er aðeins hávaxnari," segir Pelle hógvær í bókinni.

Einnig er spurt að því í bókinni hver ætti að leika Pelle ef það yrði gerð bíómynd um hann. Það stóð ekki á góðu svari þar heldur.

„George Clooney því hann er svo fágaður."

Pelle segir einnig að hann líki sjálfum sér við Zlatan Ibrahimovic. Hann viðurkennir reyndar að vera ekki jafn góður og Svíinn en segir að þeir séu líkir útlitslega.

Pelle er búinn að skora níu mörk í deildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×