Lífið

Ég bjóst alveg við því að vinna

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Jóhanna Ruth tryggði sér sæti í úrslitaþætti Ísland Got Talent  með flutningi sínum á lagi  Bonnie Tyler, Holding Out for a Hero
Jóhanna Ruth tryggði sér sæti í úrslitaþætti Ísland Got Talent með flutningi sínum á lagi Bonnie Tyler, Holding Out for a Hero
„Ég held að ég eigi alveg séns á að vinna þessa keppni, ég hef fengið alveg ótrúlega góð viðbrögð frá fólki og það voru flestir sem kusu mig í síðasta þætti. Það er alveg ótrúlega mikil vinna sem fer í að undirbúa sig fyrir svona keppni og ég er strax byrjuð að hugsa hvaða lag ég ætla að syngja í úrslitaþættinum sem fer fram 3. apríl næstkomandi,“ segir Jóhanna Ruth sem tryggði sér sæti í úrslitaþætti Ísland Got Talent með flutningi sínum á lagi Bonnie Tyler, Holding Out for a Hero, en hún hlaut einróma lof dómara fyrir frammistöðu sína, og hafði Ágústa Eva leikkona sem situr í dómnefndinni orð á því að Jóhanna væri með eina bestu rödd sem hún hefði heyrt á Íslandi.

„Ég bjóst alveg við því að vinna, ég var búin að æfa mig svo vel og ég var svo ánægð með flutninginn minn, þetta gekk allt saman upp,“ segir hin fjórtán ára gamla Jóhanna Ruth alsæl.

Baldur Dýrfjörð fiðluleikari frá Þorlákshöfn komst einnig áfram en hann hefur lært í ellefu ár á fiðlu, verið tvö ár í klassískum píanóleik og á haug af skrítnum hljóðfærum á borð við kjálkahörpu, munnhörpu og vasaflautu.
Það er óhætt að segja að þessi unga hæfileikakona eigi framtíðina fyrir sér í sönglistinni enda full sjálfstrausts og svo sannarlega með bein í nefinu, en ætli það sé eitthvað fleira sem hún stefnir á í framtíðinni?

„Ég ætla að halda áfram að syngja, ég vil endilega vinna sem söngkona þegar ég verð stór en stóri draumurinn minn er að verða flugfreyja, mig hefur alltaf dreymt um það svo ætli ég verði ekki syngjandi flugfreyja í háloftunum,“ segir Jóhanna Ruth létt í bragði.

Jóhanna Ruth er frá Filippseyjum en hefur búið á Íslandi frá því hún var átta ára gömul ásamt fjölskyldu sinni. Henni finnst mjög gott að búa á Íslandi og er ánægð í skólanum en hún stundar nám í Myllubakkaskóla í Keflavík

„Það er alveg rosalega gott að búa á Íslandi, en það er samt alveg ískalt hérna. Í dag er ég að fara að koma fram á árshátíð í skólanum mínum og ég hlakka mikið til,“ segir Jóhanna Ruth sem hefur í nógu að snúast þessa dagana enda frábær söngkona hér á ferð sem vert er að fylgjast með. 


Tengdar fréttir

Frábær stemning í Talent-höllinni - Myndir

Annar undanúrslitaþáttur Ísland Got Talent fór fram í beinni útsendingu á Stöð 2 í gærkvöld og má með sanni segja að keppendurnir sem komust áfram í úrslit hafi slegið rækilega í gegn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×