Ég ætla að lesa

Fréttablaðið Aðsendar greinar 02. febrúar 2012 06:00
Daníel Andri Halldórsson
nemandi í 10. bekk í Giljaskóla á Akureyri
Daníel Andri Halldórsson nemandi í 10. bekk í Giljaskóla á Akureyri
Daníel Andri Halldórsson skrifar:
Það er mér mikils virði að fá að vera þátttakandi í vinnunni sem fram undan er við að glæða áhuga minnar eigin kynslóðar á lestri. Framlag sem er einn áfangi í langri vegferð. Vegferð þar sem reynt verður að snúa við óæskilegri þróun þegar kemur að lestri og lesskilningi okkar unglinganna. Sjálfur hafði ég ekki áttað mig á alvarleika málsins fyrr en ég heyrði af niðurstöðum starfshóps menntaráðs Reykjavíkurborgar síðastliðið haust um lesskilning jafnaldra minna og kynbræðra í reykvískum skólum. Samkvæmt niðurstöðunum getur nærri fjórðungur þeirra ekki lesið sér til gagns. Þetta þótti mér mjög athyglisvert. Í ljósi þessara niðurstaðna fékk ég áhuga á að kynna mér nánar hvað felst í hugtakinu læsi.

Ég ritaði grein fyrir Akureyri-vikublað í lok nóvember sem bar yfirskriftina Læsi er skilningur. Í greininni velti ég fyrir mér hugtakinu læsi og hvernig lesskilningur tengist læsi órjúfanlegum böndum. Nú á tímum getur stór hluti jarðarbúa lesið og skrifað þó víða sé pottur brotinn í þeim efnum. Ekki er þó nóg að geta sett saman stafi og myndað orð og sett saman orð og myndað setningar til að teljast læs. Það þarf meira til. Hins vegar líta margir svo á að í læsi felist eingöngu sú færni að geta lesið texta.

Þar sem skilningur á hugtakinu er jafn misjafn og raun ber vitni er ekki óeðlilegt að upp komi misskilningur í umræðunni um læsi. Á Lesvefnum, sem unninn er á vegum Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf (SRR), kemur fram að læsi byggir að mestu leyti á þremur þáttum. Það er að geta lesið, skrifað og skilið innihald texta.

En er læsi nauðsynlegt í lífinu? Mér finnst það. Ég bý svo vel að búa í landi þar sem manni er kennt í 1. og 2. bekk að raða saman stöfum og orðum til að mynda setningar. Þar með myndu einhverjir telja að sigur væri unninn. Þegar lengra er komið, þ.e. á efsta stig í grunnskóla og í framhaldsskóla, ertu varla talin(n) læs nema þú kunnir að lesa, hafir góðan lesskilning og getir skrifað góðan texta.

Mennta-, vísinda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) skilgreinir læsi með eftirfarandi hætti: „Læsi er hæfileikinn til að bera kennsl á, skilja, túlka, skapa og tjá sig með því að nota prentað eða ritað efni um mismunandi samhengi. Læsi tengist áframhaldandi lærdómi til að leyfa einstaklingi að uppfylla markmið sín, að þroska og leggja stund við þekkingu og hæfni sína og að taka betur þátt í samfélaginu í heild sinni" [tilvitnun lýkur]. Það er ljóst að lesskilningur skiptir miklu máli þegar kemur að túlkun á hugtakinu læsi. Það er ekki nóg að kunna að lesa ef þú skilur ekki neitt um hvað textinn fjallar. Læsi er því skilningur!

Fólk er farið að horfa á sjónvarp og nota tölvur meira en áður. Vissulega lesa margir texta þegar þeir horfa á bíómyndir og aðrir sem lesa fréttir á netinu. Ég ímynda mér að fólk fari sjaldnar á bókasöfn og taki sér bækur til skemmtunar ef miðað er við fyrir daga tölvunnar. Verst er þó hvað við unglingar lesum bækur miklu minna en fullorðnir og minna en við gerðum áður fyrr. Við kjósum að eyða tíma okkar frekar á fésbókinni (Facebook), í tölvuleikjum eða með því að horfa á sjónvarpið. Einhvers staðar las ég að meira en helmingur unglinga á aldrinum 15-24 ára lesi ekki bækur sér til skemmtunar. Þá rakst ég á niðurstöður rannsóknar frá 2007 sem sýna að unglingar lesa í að meðaltali 7 mínútur á dag. Ef rétt reynist finnst mér það mjög slæmt.

Ég vil taka það fram að ég sjálfur hef lengst af á minni skólagöngu verið latur við að lesa bækur mér til skemmtunar. Ég nota netið mikið, les reyndar texta á netinu, en hef hingað til kosið að eyða tíma mínum í eitthvað annað en bókalestur. Ég fer til dæmis eingöngu á bókasöfn til að læra, finna heimildir fyrir ritunarverkefni og ritgerðir og eitthvað álíka. Ég er nokkuð viss um að ég er ekki einn um að lesa sjaldan eða aldrei. Þessu vil ég breyta og er þetta meðal annars eitt áramótaheitið mitt, þ.e. að vera duglegri að lesa bækur. Ef krakkar á mínum aldri lesa ekki bækur, í það minnsta nokkrum sinnum á viku, ættu þeir að byrja á því núna. Það er mikið heimanám sem bíður í framhaldsskólunum og þá er gott að vera byrjaður að venja sig við. Betra er seint en aldrei!

Mikil hugarþjálfun felst í því að lesa bók, hugsa um söguþráðinn, sögusviðið, persónurnar og annað sem tengist bókinni. Ég held að maður eigi auðveldara með að einbeita sér ef maður er duglegur að lesa. Þá má ekki gleyma mikilvægi lestrar þegar kemur að stafsetningu. Eftir því sem meira er lesið því fleiri orð festast í minninu. Samræmdu prófin byggjast að mjög miklu leyti á lesskilningi og þá er auðvitað betra að vera orðin(n) læs.

Til að teljast vera orðinn læs er ekki nóg fyrir þig að geta raðað saman stöfum til að mynda orð. Þú þarft líka að geta skrifað texta og síðast en ekki síst skilið texta. Við unglingarnir gerum okkur kannski ekki grein fyrir því hvað við búum vel á Íslandi þar sem allir læra að lesa og skrifa. En það er ekki nóg. Þó við kunnum aðferðina þurfum við að halda áfram að lesa til að þjálfa lesskilninginn. Við þurfum að hvíla okkur á tölvunni og sjónvarpinu og fara að gefa bókinni aftur tækifæri. Mér finnst leiðinlegt að þurfa að viðurkenna hvað ég og mínir jafnaldrar og kynbræður förum sjaldan á bókasöfn. Ég vona að við unglingar förum að átta okkur á hvaða afleiðingar það getur haft ef við höldum áfram á sömu braut áður en það verður of seint. Ég veit að ég mun ekki sjá eftir því að gera breytingar og eyða meiri tíma í lestur á kostnað tölvunnar.

Ég vil nota þetta tækifæri og hvetja jafnaldra mína og kynbræður sem og alla aðra landsmenn til að taka sér bók í hönd. Það ætla ég að gera.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Ég ætla að lesa