Skoðun

Ég á allt mitt undir að læknarnir verði hér

Ásdís Valdimarsdóttir skrifar
Ég hef verið að velta fyrir mér hvort ríkisstjórnin sé ekki bara með læknadeiluna alveg á kristaltæru.

Hún ætlar ekki að semja við læknana, trúir ekki að þeir muni allir bara fara. Fólk heldur að þeir ætli sér að knýja fram einkavæðingu, ég er ekki viss um það.

Ég held bara að þeim sé alveg sama, þeir gera sér enga grein fyrir hversu víðtæk áhrif það hefur ef heilbrigðiskerfið hrynur, þeir eru bara að horfa á læknanna og þeim er bara sama ef þeir hætta, því að ef fólkið á alþingi og þá ríkisstjórnin veikist geta þau alltaf farið til útlanda til læknis, ég veit ekki hvort þessir háu herrar þurfi að leita til siglinganefndar til þess að fá leyfi þótt við almúginn þurfum þess ef eitthvað alvarlegt kemur upp á.

Ef enginn læknir er þá er enginn sem skrifar beiðni til þessarar nefndar svo líklega fellur hún niður.

Engin lyf verða skrifuð út svo sjúklingar koma til með að deyja hægt og rólega, en það verður mikið að gera hjá útfararþjónustum, fjölskyldur missa börnin sín, fólk missir fyrirtækin sín, því að það er fólk á bak við öll fyrirtæki og fólk veikist; fær allskonar sjúkdóma. Mörg fyrirtæki eru ekki nógu stöndug til þess að geta bara borgað brúsann fyrir sína starfsmenn til útlanda svo þeir komist til læknis. Ekkert gerist af sjálfu sér, öllu er stjórnað af fólki, ennþá allavega.

Það er mjög brýnt að semja við lækna, svo er líka mjög brýnt að það komi fram, ég las að Bjarni sagði að læknar væru að biðja um 170.000kr hækkun.

Ég las það líka að aðstoðarmenn Sigmundar Davíðs væru 7. Það er ólöglegt, þeir mega vera 2. Mega þeir bara gera hvað sem er, þurfa þeir ekki að fara eftir íslenskum lögum?

Ég á allt mitt undir að læknarnir verði hér svo ég vil að launin þeirra verði hækkuð, og af hverju þarf það að hafa áhrif á launaskrið þegar svona mikið er í húfi þegar heildarmyndin er skoðuð?

Ef að þjóðin hættir að horfa í naflann á sér og horfa á það sem gerist, horfa fram en ekki afturábak þá kannski sjáið þið, að til þess að halda lífi í íslensku atvinnulífi, þarf að halda lífi í læknum svo þeir geti haldið okkur á lífi, svo þið sem eruð vinnufær og dugleg getið unnið fyrir fyrirtækin í landinu. Annars bara gengur samfélagið ekki upp og Ísland er ónýtt, þetta helst allt í hendur.  

En kannski ætlar ríkisstjórnin bara að hafa Ísland fyrir sig og sína þess vegna semja þeir ekki, ég segi bara enn og aftur af hverju skiluðu þeir byssunum ?




Skoðun

Sjá meira


×