Ég á!

Fréttablaðið Fastir pennar 27. ágúst 2010 06:30
Pawel Bartoszek skrifar.
Pawel Bartoszek skrifar.

Fyrir um viku síðan var lögð hjólarein á Hverfisgötuna. Í þeim tilgangi þurfti að fjarlægja um fjörutíu bílastæði í eigu borgarinnar úr syðri vegkantinum og mála þar græna rönd með hjólamerki. Á norðurakreininni voru málaðir nokkrir svokallaðir hjólavísar en það eru merki sem eiga að minna ökumenn á að þeir deili götunni með hjólreiðamönnum.

Með þessari einföldu og ódýru aðgerð tókst að breyta fremur óhjólavænni umferðargötu í fremur hjólavæna. Þetta sýnir raunar hve litla fyrirhöfn og lítinn kostnað þarf stundum til að laga samgönguæðar gangandi og hjólandi vegfarenda. Ef það væri nú bara jafnódýrt og -fljótlegt að mála sér eins og eina Sundabraut, tvöföldun Suðurlandsvegar eða ný mislæg gatnamót. Mikið væri lífið þá ljúft!

En þótt mér heyrist ansi margir vera sáttir við þessa breyttu götumynd Hverfisgötunnar þá eru það ekki allir, og fjölmiðlunum hefur í öllu falli gengið mun betur að finna þá sem eitthvað hafa við tilraunina að athuga. Í þessu tilfelli voru það einhverjir þeirra íbúa sem „missa" þá þau stæði sem þeir höfðu gjaldfrjálsan aðgang að stóran hluta sólarhrings. Einn íbúinn var meira að segja að missa hálfgert einkastæði sem hann hafði eignast út frá bílskúr sem lá að götunni. Enginn vill auðvitað leggja inn í innkeyrslu að bílskúr, nema að hann eigi bílskúrinn sjálfur, þannig varð almennt göturými að einhvers konar einkastæði eins bíleiganda og skiljanlega varð sá nú svekktur að það skyldi vera tekið af honum.

Það er auðvitað ekki í sjálfu sér óskiljanlegt að mönnum sárni það þegar þeir verða af einhverjum veraldlegum gæðum sem þeir gátu notið hingað til. En við skulum samt setja hlutina upp rétt. Stæðin fjörutíu sem tímabundið var nú breytt í hjólastíg voru ekki eign þeirra íbúa sem við götuna búa, heldur eign borgarinnar. Í fjölda ára kaus borgin að láta þau bíleigendum í té, ódýrt hluta úr degi en ókeypis þar fyrir utan. Nú hefur borgin hins vegar ákveðið að ráðstafa þessu rými tímabundið til annarra, í fullkomnu samræmi við þá stefnu sína að auka veg umhverfisvænna samgöngumáta á kostnað einkabílsins. Maður getur svo sem skilið að einhver verði svolítið fúll, en lengra nær réttur manna nú ekki.

Annar aðili sem hafði efasemdir um hjólastíginn var eigandi hjólaverkstæðis á Hverfisgötu. Mikið held ég að sá maður lesi illa í kúnnahópinn sinn ef hann heldur að andstaða við hjólarein falli vel í kramið hjá væntanlegum viðskiptavinum hans. Enn og aftur er í sjálfu sér ekkert óskiljanlegt að margir verslunareigendur óttist minni verslun með færri bílastæðum en dæmin úr erlendum borgum virðast eiga auðvelt með að fella þá tilgátu að ofgnótt bílastæða sé forsenda líflegrar miðborgar. Raunin er þveröfug. Á áhyggjuraddir kaupmanna hefur verið hlustað hingað til og hver er raunin? Finnst mönnum virkilega að Hverfisgatan nýti sína verslunarmöguleika til fulls?

Ég held raunar að áður en langt um líður muni breytt ásýnd Hverfisgötunnar fela í sér stórkostlega lífskjarabót fyrir íbúa hennar. Ekki einungis mun tilkoma hjólreiðafólks lækka hraðann í götunni og umferðin sjálf mun minnka eftir því sem færri rúnta götuna í leit að bílastæðum heldur mun sjálf götumyndin breytast til hins betra. Í Kaupmannahöfn má finna margar líflegar borgaræðar, með hjólabrautum beggja vegna, öflugum almenningssamgöngum og verslunarrými á jarðhæð, götur á borð við Vesterbrogade eða Amagerbrogade og margar fleiri. Þannig gata gæti Hverfisgata hæglega orðið. Þeir Reykvíkingar sem vilja búa við slíka götu hafa ekki marga kosti í dag, en þeir sem vilja hafa tryggan aðgang að nægum bílastæðum hafa um allar aðrar íbúðir á landinu að velja.

Tilrauninni með hjólabrautina á Hverfisgötunni á að ljúka í lok september. Þá verður málað yfir græna borðann og bílastæðin tekin í notkun á ný. En vonandi munu menn svo bretta aftur upp ermarnar með vorinu og búa til varanlega lausn fyrir hjólandi vegfarendur á Hverfisgötunni og víðar í bænum. Ég sé fyrir mér að menn geti hjólað eftir sérstakri hjólarein frá Lækjartorgi, eftir Hverfisgötu og Borgartúni og alla leið niður í Laugardal. Það væri yndislegt. Í þannig borg vil ég búa.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Ég á!