Lífið

Eftirréttur sem gleður augað og bragðlaukana

Guðný Hrönn skrifar
Matarbloggarinn Anna Björk Eðvarðsdóttir.
Matarbloggarinn Anna Björk Eðvarðsdóttir. Vísir/Anton Brink
Matarbloggarinn Anna Björk Eðvarðsdóttir deilir með lesendum uppskrift að ljúffengum eftirrétti sem hefur slegið í gegn hjá öllum sem bragða á honum. Anna segir auðvelt að útbúa eftirréttinn en útkoman er bæði ómótstæðilega bragðgóð og falleg.

„Mataráhuginn hefur fylgt mér lengi, þess vegna byrjaði ég að blogga. Bloggið gefur mér líka tækifæri til að fá útrás fyrir ljósmyndaáhugann. Ég get alveg gleymt mér í þessu tvennu, tala nú ekki um þegar það fer saman,“ útskýrir Anna Björk Eðvarðsdóttir sem heldur úti blogginu annabjork.is. Anna deilir með lesendum uppskrift að einum af sínum uppáhaldsréttum. Um gómsætan eftirrétt er að ræða.

„Nutella/Milka mússin er mikið uppáhald hjá fjölskyldunni. Ég segi ekki að ég sé Nutella-fíkill, en… súkkulaði og heslihnetur eru hreint frábær samsetning, ekki satt? Svo eru það hafrakökurnar og kirsuberjasósan, hún er venjulega með ris à l’amande á jólunum og mér finnst það bara alltof sjaldan. Þetta er einn af þessum eftirréttum sem hægt er að búa til tveimur dögum áður en hann er borinn fram. Það tekur enga stund að búa hann til og rétturinn er fallegur á borði, svo hann hefur allt með sér. Ég hef skammtana ekki stóra en það má alltaf fá sér tvisvar.“

Eftirrétturinn er í uppáhaldi hjá Önnu og fjölskyldu hennar.Mynd/Anna Björk
Fyrir 6-8

Hráefni:

2 1/2 dl rjómi

180 gr. Milka Alpine milk mjólkursúkkulaði, grófsaxað

1/4 bolli Nutella

1/2 msk. Amaretto (má sleppa)

1/2 msk. Amarula (má sleppa)

1/4 bolli ristaðar heslihnetur, grófsaxaðar

Meðlæti:

Kisuberjasósa frá Den Gamle Fabrik, í glerkrukkum

Hafrakökur, ég kaupi þessar frá Ikea 1/2 - 1 dl þeyttur rjómi

Aðferð:

Ofninn er hitaður í 180°C og hneturnar settar á álpaappír og ristaðar í sjö mínútur. Þær eru teknar úr ofninum og kældar og svo grófsaxaðar. 1/3 af rjómanum er hitaður í potti að suðu. Rjóminn er tekinn af hitanum og súkkulaðið sett út í ásamt Nutella. Blandan er látin standa í smástund þar til súkkulaðið og Nutella er bráðið, þá er líkjörnum hrært saman við ef hann er notaður. Restin af rjómanum er þeyttur og honum er svo hrært varlega saman við. Mússinni er skipt niður í 6-8 glös og kælt í lágmark 2-3 tíma. Þegar mússin er borin fram er glasið skreytt með þeyttum rjóma, kirsuberjasósu, hnetum og 1-2 hafrakökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×