Erlent

Eftirlýstur maður svaraði lögreglunni á Facebook

Samúel Karl Ólason skrifar
Daniel Damon.
Daniel Damon. Lögreglan í Viktoríu
Lögreglan í Viktoríu í Ástralíu auglýsti í gær eftir upplýsingum um flóttamanninn Daniel Damon á Facebook. Með færslunni var birt mynd af Damon og upplýsingar um hvar talið var að hann ætti heima. Skömmu eftir að færslan var birt, hafði Damon hins vegar gert athugasemd við myndina sem notuð var.

„Getið þið notað betri mynd. Þetta er hræðileg fangamynd,“ skrifaði Daniel Damon við færsluna. Lögreglan svaraði honum fljótt og sagði: „Hæ Daniel. endilega komdu við á næstu lögreglustöð og við skulum sjá til þess að tekin verði betri mynd af þér.“

Damon svaraði aftur um hæl og sagðist einmitt ætla að gera það þegar hann væri búinn að útvega sér lögfræðing og ganga frá nokkrum lausum endum.

Samkvæmt lögreglunni er Damon eftirlýstur vegna umferðarbrota og glæpi tengdum eiturlyfjum.

It is believed that Daniel may be living in St Kilda.

Posted by Victoria Police on Sunday, July 5, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×