Eftirlit hert í Vesturbænum Helga Arnardóttir skrifar 17. maí 2013 12:01 Hringbrautin í Vesturbæ Reykjavíkur.
Eftirlit lögreglu hefur verið hert í Vesturbænum og öðrum hverfum eftir að karlmaður tók tæplega ellefu ára stúlku upp í bíl og braut á henni kynferðislega í vikunni. Foreldrafélög allra skóla á svæðinu brýna fyrir foreldrum að fræða börnin sín um hvernig bregðast eigi við svona atvikum. Ljóst er að foreldrar barna í vesturbænum eru slegnir yfir atvikinu síðasta þriðjudag og hafa foreldrafélög Grandaskóla, Vestubæjarskóla, Landakotsskóla, Melaskóla og Hagaskóla sent öllum foreldrum póst um hvernig bregðast eigi við svona alvarlegum atvikum. Búist er við að umsjónakennarar og stjórnendur skólanna ræði við börn sem eru í þriðja til tíunda bekkjar um viðbrögð í svona málum. Brýnt er fyrir foreldrum barna í fyrsta og öðrum bekk grunnskólanna að ræða við börnin sín á rólegum nótum og á yfirvegaðan hátt án þess þó að hræða þau. Í póstinum til foreldra er farið yfir nokkur atriði sem ræða þarf við börn, sérstaklega að þau fari ekki upp í bíl með ókunnugum, fari strax á stað þar sem er fólk. Upplifi barn áreiti eða hættu sé það hvatt til að taka vel eftir öllu til dæmis bílnúmerum eða öðrum auðkennum. Lögð er áhersla á að ræða þurfi málin á þann hátt að niðurstaðan verði ekki að börn vantreysti fullorðnum almennt. Eftirlit lögreglu hefur verið hert í Vesturbænum eftir þetta atvik. Að sögn yfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu verður lögreglan sýnileg í hverfinu og öðrum hverfum í grennd við skólana á næstu vikum. Maðurinn sem grunaður er um að hafa numið stúlkuna á brott er á fertugsaldri og hefur ekki komið við sögu lögreglu áður vegna ofbeldisbrota. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á Litla hrauni til 29.maí. Í yfirheyrslum lögreglu ber hann við minnisleysi og fleira gefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ekki upp um málið að svo stöddu.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira