Lífið

Eftirlíking jakka Lofts til styrktar heimilislausum

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Hjónin Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Gunnarsdóttir hafa endurgert hermannajakka Lofts, bróður Kolbrúnar.
Hjónin Gunnar Hilmarsson og Kolbrún Gunnarsdóttir hafa endurgert hermannajakka Lofts, bróður Kolbrúnar. Fréttablaðið/Anton Brink
„Loftur hefði orðið 35 ára í vikunni og okkur langaði að gera eitthvað sérstakt af því tilefni,“ segir Gunnar Hilmarsson fatahönnuður, einn af þeim sem standa að Minningarsjóði Lofts Gunnarssonar sem berst fyrir bættum hag utangarðsfólks á Íslandi.

Sjóðurinn stendur nú fyrir sölu á 50 hermannajökkum svipuðum þeim sem Loftur klæddist gjarna en hann var þekktur fyrir sinn sérstaka stíl. Jakkanum breytti hann sjálfur og Nonni í Dead setti nokkur handgerð prent á jakkann fyrir Loft og ýmislegt bættist á jakkann með tímanum, svo sem barmmerki, nælur og fleira.

Jakkarnir verða eins nákvæm eftirgerð og mögulegt er af upprunalega jakkanum og eru seldir í forsölu á Karolina fund. Gunnar segir viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu vonum.

„Þeir sem vilja tryggja sér jakkann verða að hafa hraðar hendur því þetta hefur rokið út. Það verður líka einhvers konar yfirlýsing fyrir þennan málstað hjá þeim sem bera jakkann, um að við erum öll eins og maður á ekki að dæma einhvern fyrir það hvernig hann lítur út,“ segir Gunnar, sem er mágur Lofts.

Jakkinn hans Lofts
Allur ágóði af framleiðslu jakkans fer í næsta verkefni Minningarsjóðs Lofts Gunnarssonar, en það er að kaupa átta ný rúm á heimili fyrir heimilislausa karlmenn á Njálsgötu 74. 

Loftur lést í janúar 2012 og að minningarsjóðnum standa vinir og vandamenn Lofts. „Loftur átti mikið bakland og mikið net af fólki sem þótti vænt um hann þó að hann áttaði sig ekki alltaf á því.“

Áhugasamir geta fest kaup á jakkanum hér. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×