Skoðun

Eftir hverju er verið að bíða?

Rakel Sölvadóttir skrifar
Í dag skiptast þjóðartekjur milli fjögurra þátta; sjávarútvegs, stóriðju, ferðaiðnaðar og annars. Undir þetta „annað“ fellur hugverkið og það er þar sem við getum komið Íslandi á kortið sem frumkvöðli í tækni, tæknimenntun og rannsóknum. Í skýrslu Porter, Delgado-Garcia, Ketels og Stern um samkeppnisstuðul er fjallað um mikilvægi þekkingar og að þekking sé einn stærsti lykilþátturinn í framleiðni og þar af leiðandi hagvexti þjóða. Þetta meikar fullkominn sens svo ég sletti nú aðeins.

Hvernig þekkingu þurfum við helst á að halda í dag og inn í framtíðina?

Þurfum við þekkingu sem gengur á auðlindir landsins? Þurfum við þekkingu til að planta niður fleiri álverum og áburðarverksmiðjum sem flytja tekjurnar úr landi? Hagkerfi framtíðarinnar byggist á tækni, tæknilæsi og tæknisköpun en því miður er allt of algengt að nemendur velja sig frá tæknigreinum sem ýtir undir viðvarandi skort á menntuðu tæknifólki. Vandinn snýr ekki eingöngu að því að fyrirtæki vanti tæknimenntað fólk – stærsta vandamálið er að ungt fólk og þá sérstaklega ungar konur velja sér síður tækninám þegar í framhaldsskóla og háskóla er komið. Ein af ástæðunum er sú að nemendur fá ekki tækifæri til að kynnast því hvernig hægt sé að nýta tæknina á skapandi máta á fyrri skólastigum og öðlast þannig grunnþekkingu og skilning á tækni og forritun.

Menntakerfinu er oft líkt við stórt olíuskip og að það taki langan tíma að snúa því eftir að ákvörðun hafi verið tekin. Í tilfelli Íslands höfum við ekki einu sinni þessa ákvörðun. Nítján af 20 ríkjum Evrópu sem svöruðu könnun Evrópska skólanetsins eru búin að innleiða forritun eða við það að innleiða hana. Ísland er hér eftirbátur og svaraði ekki einu sinni könnuninni. Formleg ákvörðun hjá menntamálayfirvaldinu um innleiðingu á forritun í grunnskóla landsins væri öflugt skref að taka. Í framhaldinu væri hægt að veita skólakerfinu og atvinnulífinu stuðning við að snúa skipinu. Þetta þarf ekki að vera svona erfitt og flókið – hið opinbera má leita til atvinnulífsins eftir stuðningi og sérþekkingu! Það er komið nóg af endalausum starfshópum og rykföllnum skýrslum og kominn tími á framkvæmdir. Tækninám leggur grunn að grundvallarfærni nemenda á vinnumarkaði 21. aldarinnar. Hagvöxtur er háður þekkingu og við verðum því að hefjast handa við að efla menntakerfið í takt við tækniþróunina og gefa Íslandi „Forskot til framtíðar“. Eftir hverju er verið að bíða?




Skoðun

Sjá meira


×