Lífið

Efri Stéttin verður sýnd á Vísi í sumar

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Fyrstu þátturinn er tilbúinn til sýningar 10. júlí
Fyrstu þátturinn er tilbúinn til sýningar 10. júlí Vísir/Valli
Þættirnir Efri stéttin munu hefja göngu sína á Vísi og Stöð 3 þann 10. júlí næstkomandi.

Nokkrir meðlimir þáttanna voru áður í skemmtiþáttunum 12:00 í Verzlunarskólanum en ásamt þeim eru tvær ungar og upprennandi leikkonur í hópnum.

Þættirnir verða að mestu „sketchar“ en einnig er stefnt að því að gefa út nokkur lög. Þættirnir verða tíu talsins og verða í gangi í allt sumar.

„Við erum búin að vera að gera svipaða þætti í allan vetur og okkur langaði að halda áfram með þetta konsept. Nú er þetta betra því við fáum borgað og það er meiri hvatning til þess að leggja meiri metnað í þættina. Við vorum búin að vera að hugsa þetta í vetur og í lok maí fórum við á fund í 365 til þess að kynna hugmyndina okkar. Þeim leist vel á okkur og við fórum strax að vinna í handritinu og taka upp,“ segir Árni Steinn, einn meðlimur þáttarins.

Ágúst Elí Ásgeirsson mun sjá um að taka upp og klippa þættina til en hann gerði það einnig í 12:00 þáttunum sem þóttu mjög vel gerðir.

„Við sáum hvað Áttan, þætt­irnir, gerðu hérna í fyrra og sáum að við gátum auðveldlega gert það sama nema miklu betur enda með frábæran hóp sem er að vinna í þessu.“

Meðlimir Efri stéttarinnar eru þau Árni Steinn Viggósson, Bergþór Másson, Melkorka Davíðsdóttir Pitt, Ágúst Elí Ásgeirsson, Brynjar Barkarson, Birna María Másdóttir og Kári Eldjárn.

Hér fyrir neðan má sjá lög sem meðlimir Efri Stéttarinnar brega fyrir.


Tengdar fréttir

Verzló góður undirbúningur

María Ólafsdóttir sigraði í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær en hún, Friðrik Dór og meðlimir StopWaitGo eru öll fyrrverandi nemendur Verzlunarskóla Íslands.

Úr Verzló til Versace

Hinn tvítugi Orri Helgason gekk sýningarpallinn fyrir Versace um nýliðna helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×