Lífið

Efri stéttin: Sérstakt samband milli ungs drengs og bjórsala

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í nýjasta þætti Efri stéttarinnar má sjá skets sem fjallar um furðulegt samband ungs drengs við bjórsala.

Hann myndar einstakt vináttusamband við eldri strák sem starfar sem bjórsali. Aldursmunurinn skiptir greinilega engu máli hjá þessum tveimur.

Meðlimir Efri stéttarinnar voru áður í skemmtiþættinum 12:00 í Verzlunarskólanum og vöktu mikla athygli síðasta vetur fyrir vel heppnuð lög og myndbönd og sprenghlægileg atriði. Þættirnir verða sýndir vikulega fram í september og frumsýndir hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×