Lífið

Efri stéttin: Dagur B. neitar Bryggjuhverfinu um sjálfstæði

Tinni Sveinsson skrifar
Þriðji þáttur Efri Stéttarinnar er lentur á Vísi. Í þættinum heldur Snæbjörn áfram að berjast fyrir sjálfstæði Bryggjuhverfisins og heldur hann nú á fund Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.

Sjá einnig: Snæbjörn berst fyrir sjálfstæði Bryggjuhverfisins

Efri stéttinni er fátt heilagt eins og sést meðal annars í atriði í þættinum þar sem prestar eru í aðalhlutverki. Efri Stéttin mætir einnig á vettvang glæps óvenjulegs bófa og gerir grín að slöppum skeggvexti meðlima hópsins.

Á bak við Efri Stéttina er einn ferskasti grínhópur landsins. Meðlimir hans 
voru áður í skemmtiþættinum 12:00 í Verzlunarskólanum og vöktu mikla athygli síðasta vetur fyrir vel heppnuð lög og myndbönd og sprenghlægileg atriði. 



Sjá einnig: Frumsýning: Skemmtiþátturinn Efri Stéttin mætt á Vísi.

Þættirnir verða sýndir vikulega fram í september og frumsýndir um helgar hér á Vísi.

Þau sem skipa Efri Stéttina eru Árni Steinn Viggósson, Bergþór Másson, Melkorka Davíðsdóttir Pitt, Ágúst Elí Ásgeirsson, Brynjar Barkarson, Birna María Másdóttir og Kári Eldjárn.

Meðlimir Efri Stéttarinnar eru mjög virkir á samfélagsmiðlum og hvetjum við lesendur til að fylgjast einnig með þeim á InstagramTwitterFacebook og á Snapchat (efristettin).



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×