Handbolti

Efnilegustu íslensku handboltastelpurnar spila í Víkinni yfir páskana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Framstúlkurnar Ragnheiður Júlíusdóttir (númer 9) og Hekla Rún Ámundadóttir (7) eru báðar í íslenska liðinu.
Framstúlkurnar Ragnheiður Júlíusdóttir (númer 9) og Hekla Rún Ámundadóttir (7) eru báðar í íslenska liðinu. Vísir/Daníel
Stelpurnar í 20 ára landsliðinu í handbolta eru á heimavelli í undankeppni HM í Króatíu en riðillinn þeirra fer fram í Víkinni um páskana og fyrsti leikdagurinn er í dag.

Íslenska liðið spilar sinn fyrsta leik á móti Úkraínu og hefst leikurinn klukkan 14.00 í dag. Ísland mætir einnig Rúmeníu á morgun og Slóveníu á páskadag. Tvö efstu liðin í riðlinum tryggja sér sæti í lokakeppni HM sem fram fer í Króatíu í sumar.

Stór hluti íslenska liðsins er kominn í stór hlutverk með sínum liðum í Olís-deild kvenna og þrjár af sextán leikmönnum liðsins spilar erlendis.

Leikmenn eins og Ragnheiður Júlíusdóttir úr Fram, Thea Imani Sturludóttir úr Fylki, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir úr Selfossi, Helena Rut Örvarsdóttir úr Stjörnunni og Áróra Eir Pálsdóttir úr Haukum hafa allar spilað vel í vetur og þá verður gaman að sjá hvað Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur bætt við sinn leik eftir eitt tímabil í Noregi.

Þjálfarar íslenska liðsins eru Guðmundur Karlsson og Halldór Harri Kristjánsson en hér fyrir neðan má sjá leikmannahóp Íslands þessa páskahelgi.



Tuttugu ára kvennalandslið Íslands í handbolta:

Markverðir:

Ágústa Kristín Magnúsdóttir, Fjellhammer í Noregi

Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylkir

Aðrir leikmenn:

Áróra Eir Pálsdóttir, Haukar

Bryndís Elín Halldórsdóttir, Valur

Eva Björk Davíðsdóttir, Grótta

Guðný Hjaltadóttir, Grótta

Hekla Rún Ámundadóttir, Fram

Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfoss

Karólína Vilborg Torfadóttir, Fram

Kristrún Steinþórsdóttir, Aarhus í Danmörku

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram

Ragnheiður Ragnarsdóttir, Haukar

Sigrún Jóhannsdóttir, FH

Thea Imani Sturludóttir, Fylkir

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Grue/KIL í Noregi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×