Golf

Efnilegasti kylfingur Íslands upp um 2.400 sæti á heimslistanum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gísli Sveinbergsson á framtíðina fyrir sér.
Gísli Sveinbergsson á framtíðina fyrir sér. vísir/daníel
Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn upp í 107. sæti á heimslista áhugakylfinga og hefur þar með bætt met Ólafs Björns Loftssonar úr Nesklúbbnum sem hæst komist í 110. sæti árið 2011.

Frá þessu greinir Kylfingur.is, en Gísli, sem er aðeins sautján ára gamall, er efnilegasti kylfingur landsins um þessar mundir.

Hann er aðeins sautján ára gamall en orðinn landsliðsmaður og þá vann hann Duke of York-ungmennamótið í Skotlandi í sumar, það sterkasta sem í boði er fyrir kylfinga á hans aldri.

Gísli getur bætt stöðu sína enn frekar í desember þegar hann keppir á sterkum áhugamannamótum í Miami í Bandaríkjunum.

Takist vel til þar gæti Gísli komist í hóp 100 bestu áhugakylfinga í heimi, en hann hefur nú farið upp um 2.400 sæti á heimslistanum á þessu ári.

Efstu íslensku kylfingarnir á heimslistanum:

107. Gísli Sveinbergsson, GK

233. Haraldur Franklín Magnús, GR

262. Bjarki Pétursson, GB

583. Kristján Einarsson, GKj.

Stöðu allra Íslendinganna má sjá á Kylfingi.is.


Tengdar fréttir

Gísli vann Duke of York-mótið

Hinn bráðefnilegi kylfingur, Gísli Sveinbergsson, gerði sér lítið fyrir og vann hið fræga Duke of York-mót sem fram fór á Royal Aberdeen í Skotlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×