Innlent

Efna til hádegisfundar um bresku þingkosningarnar

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ólafur og Bogi, t.v. hafa spáð og spekúlerað í kosninganiðurstöður um áraraðir. Eva Bjarnadóttir, t.h., er stjórnmálafræðingur.
Ólafur og Bogi, t.v. hafa spáð og spekúlerað í kosninganiðurstöður um áraraðir. Eva Bjarnadóttir, t.h., er stjórnmálafræðingur. Vísir/Vilhelm/Stefán/GVA/Aðsent
Félag stjórnmálafræðinga, Edinborgarfélagið og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands efna til fundar um bresku þingkosningarnar 2015. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 5. maí kl. 12-13 í stofu 101 í Odda. Þetta segir í tilkynningu frá Félagi stjórnmálafræðinga.

„Framsögumenn verða þau Eva Bjarnadóttir stjórnmálafræðingur, Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði og Bogi Ágústson, fréttamaður á RÚV. Þau munu meðal annars velta upp spurningum um hvað hefur einkennt bresku þingkosningarnar að þessu sinni, hvort að Skotland muni ráða úrslitum og hvort að breska kosningakerfið sé komið í öngstræti,” segir í tilkynningunni. Stofan verður opin og hleypt inn á meðan pláss leyfir. Aðgangur er ókeypis.

„Að afloknum erindum fara fram umræður og fyrirspurnir undir stjórn Evu H. Önnudóttur stjórnmálafræðings og skal fyrirspurnum um fundinn beint til hennar eho@hi.is.”

Eftirfarandi fer lýsing á framsöguerindum þeirra sem koma fram á fundinum:

Eva Bjarnadóttir

Bresku þingkosningarnar 2015: Þjóðernishyggja, sviptingar og Skotland

Sjálfstæði, þjóðerni og daður við fordóma

Kosningabaráttan í Bretlandi er gott dæmi um hversu flókin lýðræðisleg umræða getur orðið í alþjóðlegu umhverfi. Í því ljósi er áhugavert að skoða hvaða áhrif stefnumál Breska sjálfstæðisflokksins, Ukip, um sjálfstæði, þjóðerni og innflytjendur hafa haft á dagskrá kosninganna.

Ólafur Þ. Harðarson

Kosningakerfi í kreppu?

Í annað skiptið í röð virðist breska kosningakerfið ekki ætla að skila neinum flokki hreinum meirihluta - sem oft er þó talinn helsti kostur þess. Og margt er umhugsunarefni varðandi misvægi á hlutfalli atkvæða og fjölda þingmanna ef skoðanakannanir ganga eftir.

Framsögumenn verða þau og Eva Bjarnadóttir stjórnmálafræðingur, Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði og Bogi Ágústson, fréttamaður á RÚV. Þau munu meðal annars velta upp spurningum um hvað hefur einkennt bresku þingkosningarnar að þessu sinni, hvort að Skotland muni ráða úrslitum og hvort að breska kosningakerfið sé komið í öngstræti.

Bogi Ágústsson

Ræður Skotland úrslitum?

Allt bendir til þess að Skoski þjóðernisflokkurinn muni sigra kosngarinar í Skotlandi. Mun það mögulega hafa áhrif á heildarniðurstöður bresku þingkosninganna 2015?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×