Eflaust ekki einsdæmi en skemmtilegt Gunnar Leó Pálsson skrifar 4. september 2015 10:00 Anna Kristín Pálsdóttir heldur hér á prófskírteininu í spjaldtölvunni. Vísir/Vilhelm
Fréttakonan og verkfræðingurinn Anna Kristín Pálsdóttir gerði sér lítið fyrir og nældi sér í tíu í einkunn fyrir mastersritgerðina sína í framleiðsluverkfræði við Tækniháskólann í Berlín. „Ég fékk A sem er það sama og tíu hér á landi. Ég er auðvitað mjög ánægð en það var mikil vinna á bak við þetta meistaraverkefni,“ segir Anna Kristín alsæl með einkunnina. Hún segir þó að einkunnin hafi komið sér á óvart, enda ekki sjálfgefið að fá tíu fyrir mastersritgerð. „Auðvitað kom þetta á óvart. Þetta er eflaust ekki einsdæmi í þessu námi en var mjög skemmtilegt, sérstaklega eftir að hafa legið lengi yfir þessu verkefni,“ bætir Anna Kristín við létt í lund. Ritgerðin fjallar um gæðastjórnun í matvælaiðnaði, þar sem Anna Kristín fer yfir mögulegar aðferðir til að bæta gæðastjórnun og auka gæði í framleiðslu. Hún kláraði grunnnám í verkfræði í Háskólanum í Reykjavík en tók svo þriggja ára pásu og hóf störf sem fréttamaður. „Ég bjó í Berlín í tvö ár á meðan á náminu stóð og kunni rosalega vel við mig þar. Mér finnst verkfræðin nýtast vel í fréttamannsstarfinu, á hverjum degi þarf maður að fara yfir mikið af gögnum og tileinka sér nákvæm vinnubrögð og svona.“ Í Berlín fór hún einnig í starfsnám hjá bílaframleiðandanum Volkswagen. „Ég var að vinna hjá Volkswagen í hálft ár. Þetta var starfsnám í gæða- og straumlínustjórnun. Ég var í rauninni að fylgjast með bílunum verða til á færibandinu og mitt verkefni var að fylgjast með þeim aðferðum sem voru notaðar og reyna að koma með tillögur að bættum vinnuaðferðum,“ útskýrir Anna Kristín.
Mest lesið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum Lífið Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London Lífið Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Lífið Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Lífið Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi Lífið Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Tónlist Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Lífið „Ég fæ það of fljótt, hvað get ég gert?“ Lífið Fleiri fréttir Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða Bassi Maraj og Patrekur í svínslegu stuði Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum „Ég fæ það of fljótt, hvað get ég gert?“ Eyfi flutti Nínu með Hinsegin kórnum Steldu stíl nýja ráðherrans Litfögur listamannaíbúð í Hlíðunum Systkinin í Celebs frumfluttu lag Barnamenningarhátíðar Galvaskar á Gugguvaktinni Ragnar dillaði sér á Dillon og nýr ráðherra naut lífsins í Borgartúni Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ Stórstjarnan Bríet fagnaði 25 árum með stæl Þetta þarf að hafa í huga fyrir mataræði hvolpa „Draumur að verða að veruleika“ Stjörnulífið: „Þarna á sviðinu er æskudraumur að rætast“ Eyþór Ingi og Andrea Gylfa nelgdu eitt vinsælasta lag Grafík Sister Sledge á leið til Íslands Lykilfólkið á bak við tjöldin hjá forsetaefnunum Hefur miklar áhyggjur af áhuga ungra stúlkna á snyrtivörum „Umkringdu þig fólki sem leitar af sannleikanum“ Hélt fram á síðasta dag að framboð Katrínar væri della Fengið gjöf á hverju ári frá Tom Cruise síðan 2005 Sjá meira