Viðskipti innlent

EFLA og Verkfræðistofa Austurlands sameinast

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/EFLA
EFLA verkfræðistofa og Verkfræðistofa Austurlands sameinuðust um mánaðarmótin. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að með þessum breytingum sé verið að renna styrkari stoðum undir þá starfsemi og þjónustu sem fyrirtækin hafa stundað á Austurlandi.

Engin breyting verður í hópi starfsfólks við sameininguna en starfsstöðvar EFLU á Austfjörðum eru þrjár.

Fastráðnir starfsmenn EFLU eru um 250 talsins og hefur fjölgað um 30 prósent á þremur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×