Innlent

Efast um áframhald Schengen-samstarfsins

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir það vekja upp stórar spurningar um Schengen þegar menn eru hættir að skrá fólk inn á svæðið. Í samtali við Bítið á Bylgjunni í morgun ræddi hann um Schengen og stöðu flóttafólks.

„Það eru alltaf að koma nýjar og nýjar fréttir af einhverjum stöðum þar sem menn eru að setja upp eftirlit á landamærum, síðast var verið að stoppa umferð milli Danmerkur og Þýskalands að miklu leyti,“ sagði Sigmundur og taldi Schengen-samstarfinu í raun sjálfhætt.

„Það verður mjög erfitt að sjá hvernig Schengen-fyrirkomulagið á að lifa þetta af, nema menn nái þeim mun meiri samstöðu um aðgerðir og markmið. Það bólar nú lítið á samstöðu í Evrópusambandinu um þessi mál núna og í rauninni dapurlegt að sjá hvernig menn eru að vinna jafnvel í sitthvora áttina og þetta er allt að leysast upp í vitleysu.“

Sigmundur spurði hvort það sé eðlilegt fyrirkomulag að búa til endamark eins og Þýskaland, en að eina leiðin þangað sé að koma með ólögmætum hætti.

„Á sama tíma leyfir Þýskaland og önnur lönd þessi fólki ekki  að koma með eðlilegum hætti, ekki að fljúga til Þýskalands með flugvél. Ekki koma að landamærunum á ytri mörkum Schengen nema með ólöglegum hætti. Þannig að skilaboðin eru þessi: Þið verðið að leita á náðir glæpasamtaka og reyna að láta smygla ykkur inn  með lífshættulegum hætti. Ef ykkur tekst það, þá er tekið á móti ykkur og klappað þegar þið komið í mark.“

Heyra má viðtalið við Sigmund í heild hér fyrir neðan en umræðan um Schengen hefst eftir 15 mínútur og 50 sekúndur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×