Innlent

Ef skattleggja á veiðileyfi þyrftu aðrar fasteignir að lúta sömu lögmálum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Guðjónsson, formaður Veiðimálastofnunar.
Sigurður Guðjónsson, formaður Veiðimálastofnunar. Vísir/Daníel
Árleg velta í stangveiði hér á landi er í kringum 20 milljarða króna. Þetta kemur fram í ársskýrslu Veiðimálastofnuna fyrir árið 2013. Um er að ræða útreikninga sem miða við skýrslu Hagfræðistofunar Háskóla Íslands frá árinu 2002 reiknaðar miðað við verðlag dagsins í dag.

Sala veiðileyfa er undanþegin virðisaukaskatti. Hefur verið til umræðu hvers vegna veiðileyfin séu ekki með lágmarksvirðisaukaskatt. Af því myndu hljótast umtalsverðar tekjur í þjóðarbúið. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, og Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segja við Vísi í dag að skoða þurfi skattlagningarmálin betur.

Forstjóri Veiðimálastofnunar segir að þótt veltan í greininni sé í kringum 20 milljarðar króna á ári sé sala veiðileyfa aðeins brot af því.

„Velta í kringum stangveiði er vissulega af þessari stærðargráðu. En inni í því eru veiðileyfi, leiðsögn, bílaleigubílar, gisting, flug og allt þetta,“ segir Sigurður Guðjónsson forstjóri Veiðimálastofnunar. Hluti af þessum liðum sé nú þegar skattlagður.

Sigurður telur að veltan í sölu veiðileyfa sé líklega á milli eins og tveggja milljarða króna. Telur hann líklegra að talan sé nær einum milljarði. Tólf prósenta virðisaukaskattur myndi því skila líklega á annan eða þriðja hundrað milljóna króna. Málið sé hins vegar ekki svo einfalt.

Rökin fyrir því að ekki var settur virðisaukaskattur á veiðileyfin á sínum tíma segir Sigurður hafa verið þau að um leigu eða afnot á fasteign væru að ræða.

„Þegar þú kaupir veiðileyfi af veiðifélagi ertu að leigja ána,“ segir Sigurður.

„Ef settur yrði virðisaukaskattur á veiðileyfin þyrfti að setja það á alla fasteignaleigu. Þá yrði nú einhver leigjandinn ósáttur,“ segir Sigurður. Skoða þurfi hlutina í stærra samhengi.

„Þú getur ekki bara sett virðisaukaskatt á leigu verslunarhúsnæðis eða fjölbýlishúsnæðis sem dæmi. Þú verður að horfa á heildarmyndina.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×