Innlent

Ef millilandaflug yrði leyft gæti það stóraukið ferðamannastraum

Jóhann K. Jóhannsson og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Oddvitar framboðanna þriggja sem bjóða fram í Sveitarfélaginu Hornafirði segja að ef millilandaflug yrði leyft um Hornafjarðarflugvöll gæti það stóraukið ferðamannastraum um Suðausturland og fjölgað atvinnutækifærum.

Þingsályktunartillaga hefur verið lögð fram í fjórða skipti á Alþingi um að flugvellinum á Höfn verði breytt í alþjóðaflugvöll sem gæti tekið á móti litlum og meðalstórum flugvélum.

Þetta er reyndar í fimmta skipti sem þingsályktunartillagan er lögð fram en vegna tíðra breytinga á alþingi Íslendinga á liðnum árum hefur tillagan ekki komist í gegn og því verið endurflutt. Flugvöllurinn er staðsettur fimm kílómetra norður af Höfn og sinnir Flugfélagið Ernir áætlunarflugi.

Heimamenn vilja betri nýtingu á vellinum sem mundi gefa sveitarfélaginu aukin tækifæri.

„Þetta eykur mikla möguleika á vöru sem væri hægt að selja gagnvart ferðamönnum og þetta eykur líka tækifæri í ýmsum útflutningi, til dæmis í sjávarútvegi. Það væri hægt að fljúga hér beint út með fisk og annað þess háttar,“ segir Björn Ingi Jónsson oddviti D-lista í Sveitarfélaginu Hornafirði.

„Það er klárlega eftirspurn eftir því að fólk sem vill koma beint að utan, stoppa hér og fara á jökul og Jökulsárlón og í Skaftafell og skoða þjóðgarðinn,“ segir Ásgerður Kristín Gylfadóttir oddviti Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga.

Flugvöllurinn gegnir mikilvægu hlutverki í samgöngukerfi landsins og segir í þingsályktunartillögunni að skoða þurfi áframhaldandi rekstur og uppbyggingu á svæðinu til hagsbóta fyrir heimamenn og atvinnulíf. Staðsetning vallarins býður upp á mikla möguleika til aukinnar umferðar sérstaklega með tilkomu Vatnajökulsþjóðgarðs.

„Núna er ekki hægt að tolla vélar hér eins og þetta var nú einu sinni en þau tækifæri sem þetta myndi skapa, það er náttúrulega gluggi hérna inn í ferðaþjónustuna. Þetta getur skapað mörg tækifæri,“ segir Sæmundur Helgason oddviti Þriðja framboðsins  í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hann vonar að tillagan á þinginu fari í gegn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×