Sport

Ef ég væri karlmaður væri löngu búið að tala um mig sem þann besta frá upphafi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Serena Williams.
Serena Williams. vísir/getty
Tennisdrottningin Serena Williams hefur átt einstakan feril og hún er enn á toppnum í dag, 35 ára gömul.

Þó svo hún hafi notið mikillar velgengni á ferlinum þá fer ýmislegt í taugarnar á henni. Til að mynda hvernig talað er um íþróttakonur og karla. Íþróttakonur séu settar á lægri stall en karlarnir.

„Ef ég væri karlmaður þá væri löngu búið að tala um mig sem besta íþróttamann frá upphafi,“ sagði Serena.

„Það er bara annað að vera íþróttakona og ég tala ekki um svört íþróttakona. Ég hef talað fyrir réttindum kvenna en sú umræða týnist oft í umræðu um húðlit og mismunandi menningu.“

Hún hefur unnið 22 risamót sem er metjöfnun. Einnig hefur Serena unnið 14 risamót í tvíliðaleik með systur sinni, Venus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×