Tónlist

Eðlilegt að tjilla með Eminem

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Quarashi gefur út þriggja til fimm laga EP-plötu á árinu.
Quarashi gefur út þriggja til fimm laga EP-plötu á árinu. Vísir/Daníel
"Quarashi var stofnuð í einhverjum skúr í Vesturbænum af mér, Hössa og Steina. Það var mikil breyting fyrir okkur að fara úr því í að standa á sviði fyrir framan þrjátíu til fjörutíu þúsund manns á örfáum árum. Það var mikið sjokk,“ segir Sölvi Blöndal, meðlimur í hljómsveitinni Quarashi.

Sveitin er ein sú allra vinsælasta sem þjóðin hefur alið og spannar saga hennar tæplega tvo áratugi. Fréttablaðið fór yfir ferilinn með upprunalegu meðlimunum Sölva Blöndal og Steinari Fjeldsted og Agli „Tiny“ Thorarensen sem gekk til liðs við bandið árið 2003 þegar Höskuldur Ólafsson, eða Hössi, hætti.

Tjillað með Eminem

Sveitin var stofnuð árið 1996 en hætti árið 2005 eftir fimm breiðskífur og fjölmörg tónleikaferðalög, helst í Bandaríkjunum þar sem hún var geysivinsæl. Hvernig var þessi tími?

Steinar: „Þetta voru níu ár þar sem við vorum að allan sólarhringinn. Við vorum inni í loftbólu og þegar ég lít til baka sé ég að við gerðum okkur ekki grein fyrir því hvað var að gerast.“

Sölvi: „Okkur fannst þetta bara eðlilegt – að tjilla með Eminem og vera vinir Cypress Hill, gera plötusamninga, selja fimm hundruð þúsund plötur.“

„Eruð þið ruglaðir?“

En af hverju fór Quarashi ekki alla leið?

Sölvi: „Hópurinn þarf að vera samstillur í að vilja gera bara þetta og ekkert annað, leggja egó til hliðar og annað. Fæstir ná því. Við vorum ekki með neitt Excel-plan um að fara til útlanda. Við vorum bara að djamma og spila á tónleikum og vera gaurar. En við seldum vel frá fyrsta degi og allar plöturnar fóru í gull.“

Steinar: „Við löbbuðum á milli íslenskra plötufyrirtækja með fyrstu smáskífuna okkar og allir hlógu að okkur. „Ætlið þið að gefa út íslenskt rapp? Eruð þið ruglaðir?“ fengum við að heyra. Það hafði enginn áhuga á okkur.“

Henti fyrstu ávísuninni

Árið 1999 kom önnur breiðskífa sveitarinnar, Xeneizes út, og þá byrjuðu hjólin að snúast. Erlend plötufyrirtæki sýndu sveitinni áhuga og þeir Steinar, Hössi og Sölvi fluttu til New York árið 2000.

Steinar: „Við vorum með tvær íbúðir á tveimur hæðum í East Village á Manhattan og stúdíó og æfingahúsnæði í New York. Hljómar glamúrus en þetta var alls enginn glamúr. Það voru stanslaust einhverjir gaurar fyrir utan íbúðina og buðu okkur ýmislegt. Ýmsir krakkreykjandi menn og konur.“

Sölvi: „Til að varpa ljósi á hversu lítið við tókum þetta alvarlega þá fengum við ávísun upp á fjörutíu þúsund dollara þegar við gerðum samning við EMI. Við trúðum eiginlega ekki að við hefðum fengið þennan pening þannig að við settum ávísunina upp á arinhillu og hún var þar í um það bil mánuð. Einu sinni var Steini að þrífa og henti óvart ávísuninni. Það var mega vesen.“





Hössi hættir


Í byrjun árs 2003 hætti Hössi í hljómsveitinni og um haustið sama ár gekk Egill til liðs við sveitina. Af hverju hætti Hössi?

Sölvi: „Það var komin þreyta í menn og menn vildu gera annað. Að mörgu leyti var þetta mjög gagnkvæm ákvörðun og tekin í góðu þannig séð.“ 

Egill: „Ég fékk aldrei hlýja stemningu frá kjarnaaðdáendahópnum. Auðvitað tók ég þann slag við aðdáendur og mér finnst ég hafa staðið uppi sem sigurvegari.

Fyrsta giggið mitt var í Tókíó fyrir tuttugu þúsund manns. Það var mitt stærsta gigg fyrir utan Skrekk. Sölvi var búinn að vera að hræða mig að ef ég myndi ekki standa mig þá fengjum við ekki samning hjá Sony.“

Sölvi: „Sagði ég það?“

Egill: „Já. Ég fattaði hvað ég var búinn að koma mér í. Það leið næstum því yfir mig áður en ég fór á sviðið og það þurfti að styðja mig alla leiðina upp ramp sem í minningunni var hundrað metra langur en var örugglega bara fimmtán metra langur.“

Túraði í hjólastól

Þessum lífsstíl fylgir oft mikil áfengisneysla og stanslaus partí. Fundu Quarashi-menn mikið fyrir því?

Steinar: „Þetta var allt til staðar. Við vorum ungir strákar að ferðast um heiminn með stóran plötusamning. Auðvitað skemmtum við okkur. Það var oft alls konar rugl í gangi en ekkert sem fór yfir strikið.“

Sölvi: „Margar hljómsveitir fá A-plús fyrir að taka eiturlyf en ná aldrei neitt í músík. Svo eru sveitir eins og Guns N Roses sem fá A-plús fyrir að taka fíkniefni en líka A-plús fyrir tónlistina. Við höfðum klárlega gott vinnusiðferði til að fara ekki þangað. En það var mjög mikið af partíum. Ég man að Steini sneri á sér löppina einu sinni og ég þurfti að fara með hann á slysó. Hann endaði á því að vera í hjólastól og daginn eftir spiluðum við risagigg fyrir þrjátíu þúsund manns. Hann þurfti að vera í hjólastól á sviðinu að skemmta.“

En græddu Quarashi-menn ekki mikið á ferlinum?

Sölvi: „Ég veit það ekki. Gerðir þú það?“

Steinar: „Þetta var mjög dýrt partí.“

Gerði lag með Prodigy

Sveitin lagði upp laupana árið 2005 og segja strákarnir að líftími bandsins hafi einfaldlega verið búinn. Sjá þeir eftir einhverju?

Sölvi: „Það voru kannski níu frábær móment á móti einu slæmu. Annað væri óeðlilegt. En ég hugsa ekki til baka um hvað mig langar að vera frægur og búa í þakíbúð í New York. Ég hugsa meira um að ég hefði getað notið þess sem var að gerast á þessum tíma betur. “

En hvað stendur upp úr?

Sölvi: „Annars vegar þegar við hituðum upp fyrir Prodigy. Sú sveit var æskuástin mín. Liam Howlett, heilinn á bak við bandið, kom til mín baksviðs og sagði að þetta hefðu verið einir bestu tónleikar sem hann hefði séð. Síðan bað Prodigy mig um að endurhljóðblanda fyrir sig lag, Diesel Power. Og hins vegar þegar Jinx kom út í Bandaríkjunum árið 2002 og við fórum inn á Billboard-listann.“





Meira efni væntanlegt


Quarashi kemur saman aftur á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina, þeir Sölvi, Steinar og Egill ásamt Hössa og Ómari „Swarez“. Þeir komu síðast saman árið 2011 á Bestu útihátíðinni og sögðust þá aldrei aftur ætla að endurtaka leikinn. 

Af hverju eru þeir að koma saman núna?

Egill: „Það myndaðist mikið bræðralag á Bestu útihátíðinni þannig að það var mjög auðveld ákvörðun þegar Eyjar höfðu samband.“

Sölvi: „Þetta hefur auðvitað ekkert með þá staðreynd að gera að þetta er best borgaða gigg Íslandssögunnar.“

Í tilefni af endurkomunni gáfu Quarashi-menn út eitt nýtt lag, Rock On. Þá munu Hössi og Egill koma fram í Quarashi-lagið sem kemur út í ágúst en þeir hafa aldrei áður leitt saman hesta sína. Þá er þriggja til fimm laga EP-plata væntanleg frá sveitinni í ár.

Nýr kafli hafinn

Eftir að sveitin hætti fóru hljómsveitarmeðlimir hver í sína áttina. 

Sölvi: Ég starfa í fjármálageiranum. Ég tók meistaragráðu í hagfræði í Stokkhólmi og er hálfur í doktorsnámi enn þá.“

Steinar: „Ég þekki tvo Sölva í einum manni. Hagfræði-Sölvi er í jakkafötum, er mikið í símanum og mætir á fundi. Svo þekki ég þennan Sölva. Þann sem er í strigaskóm og hettupeysu.

Egill: „Ég hef verið að bóka íslensk bönd á hátíðina Secret Solstice sem er haldin í Laugardal í sumar. Ég er líka aðeins að taka upp tónlist.“

Steinar: „Ég starfa sem sölumaður í verslun. Ég er líka faðir. Ég á tvo drengi og einn stjúpson. Sonur minn hlustar á Quarashi sem er mjög fyndið. Ég bjóst ekki við því þegar ég samdi textana en þá hefði ég kannski blótað aðeins minna. Þessi lífsstíll sem var á mér þegar Quarashi var upp á sitt besta er löngu farinn. Sá kafli er búinn og nýr kafli er hafinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×