Bíó og sjónvarp

Edda Björgvins, Hraðfréttabræður og Jón Jónsson í Skósveinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Minions verður frumsýnd 10. júlí.
Minions verður frumsýnd 10. júlí. vísir
Skósveinarnir úr myndunum Aulinn Ég mæta í kvikmyndahúsin í sumar og fá nú heila kvikmynd út af fyrir sig.

Þessar gulu verur slógu í gegn í myndunum Despicable Me og hefur almenningur hlegið töluvert af þeim síðustu ár.

Myndin Minions verður frumsýnd 10.júlí á Íslandi og verður hún talsett á íslensku. Neðst í fréttinni má sjá nýja íslenska stiklu úr myndinni. 

Fjöldinn allur af íslenskum leikurum tekur þátt í talsetningunni og hér að neðan má sjá lista yfir þá:

Unnur Ösp Stefánsdóttir

Jón Ragnar Jónsson

Fannar Sveinsson

Benedikt Valsson

Hjálmar Hjálmarsson

Pétur Jóhann Sigfússon

Edda Björgvinsdóttir

Guðni Kolbeins

Nína Dögg Filippusdóttir

Ævar Þór Benidiktsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×