Lífið

Ed Sheeran óundirbúinn í útvarpsþætti: Tók The Fresh Prince of Bel-Air lagið óaðfinnanlega

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnaður Sheeran.
Magnaður Sheeran.
Gamanþættirnir Fresh Prince of Bel-Air voru á dagskrá frá árunum 1990-96 og nutu þeir vinsælda um heim allan.

Will Smith hóf í raun feril sinn í þáttunum og fangaði hug og hjörtu Bandaríkjamanna með leik sínum í þáttunum.

Upphafslagið var einnig gríðarlega vinsælt en breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran mætti í vikunni í viðtal á útvarpsstöðinni Capital FM og tók lagið fræga eins og sjá má hér að neðan.

Sheeran er að gefa út nýja tónlist þessa dagana og hefur hann fengið frábærar viðtökur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×