Tónlist

Ed Sheeran heldur áfram að slá í gegn: Tók Ain't No Sunshine

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tónlistamaðurinn Ed Sheeran hefur notið gríðarlegrar vinsældrar undanfarin ár og er í dag einn vinsælasti listamaðurinn í heiminum.

Um síðustu helgi vakti órafmögnuð útgáfa hans og Beyoncé af laginu Drunk in Love mikla athygli en þau fluttu lagið saman á tónlistarhátíðinni Global Citizen Festival í Central Park í New York.

Á miðvikudagskvöldið var hann mættur í spjallþáttinn The Late Show með Stephen Colbert en þar tók hann Ain’t No Sunshine eftir Bill Withers, og gerði það listavel.

Hér að neðan má sjá frammistöðu Bretans. 


Tengdar fréttir

Rándýr dúett í Central Park um helgina

Chris Martin, söngvari Coldplay, stóð fyrir gríðarlega stórum góðgerðartónleikum um helgina í New York en tónleikarnir voru undir yfirskriftinni The Global Citizen Festival og hafa verið árlega síðan 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×