Formúla 1

Ecclestone: Enn of auðvelt fyrir ökumenn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ecclestone vill meiri áskorun fyrir ökumenn.
Ecclestone vill meiri áskorun fyrir ökumenn. Vísir/Getty
Bernie Ecclestone, einráður Formúlu 1, hefur sagt að sér þyki starf ökumanna enn of auðvelt. Hann vill að akstur Formúlu 1 bíla verði meiri áskorun.

Nýlega kynnti alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA), strangar reglur um hvað má segja ökumönnum í talstöðvunum. Ecclestone eignaði sér heiðurinn af þeirri breytingu.

„Það var ég sem kom með hugmyndina. Ég held að engin ökumaður vilji heyra þetta. Þeir eru allir ánægðir með breytinguna,“ sagði Ecclestone um talstöðvabannið.

„Það er reglugerð í bígerð sem segir að ökumenn verði að aka fullkomlega óstuddir. Þeir hafa verið að fá aðstoð og fá enn aðstoð,“ sagði Ecclestone.

Aðspurður hvort það sé of auðvelt að aka nútíma Formúlu 1 bíl svaraði hann „það er ekki auðvelt, en það er auðveldara en það var.“


Tengdar fréttir

FIA bannar frammistöðuskilaboð

FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið hefur ákveðið að banna öll frammistöðutengd skilaboð í talstöðvum liðanna til ökumanna. Bannið mun taka gildi fyrir keppnina í Singapore, næstu helgi.

Formúlu 1 keppnir 2015

Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA), kynnti í dag keppnisdagatal næsta árs. Keppnirnar verða 20 í heildina, keppni í Mexíkó er eina viðbótin.

Prodromou kominn aftur til McLaren

Peter Prodromou hefur snúið aftur til starfa hjá McLaren eftir átta ár í herbúðum Red Bull. Þar starfaði hann við hlið hönnunargúrúsins Adrian Newey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×