Formúla 1

Ecclestone: Ég held að Hamilton verði meistari 2015

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton og Ecclestone ræða málin.
Hamilton og Ecclestone ræða málin. Vísir/Getty
Bernie Ecclestone, formúlueinráður telur að Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari tryggji sér sinn þriðja titil í ár. Ecclestone segir að Hamilton sé „góður meistari“ fyrir íþróttina.

Hamilton er mjög sigurstranglegur í augnablikinu. Fast á hæla hans kemur liðsfélagi hans, Nico Rosberg. Þeir aka fyrir Mercedes sem hafði gríðarlega yfirburði á síðasta tímabili. Það er ekkert sem bendir til annars en að þeir verði sterkir áfram.

„Hvort hann er sigurstranglegastur eða ekki, þá held ég að hann verði meistari,“ sagði hinn 84 ára Ecclestone.

„Honum fylgir önnur tegund áhorfenda. Hann er góður heimsmeistari,“ bætti Ecclestone við.

Ecclestone óttast að Mercedes muni drottna í nokkur ár í viðbót - hann vill koma í veg fyrir það með reglubreytingum.

„Mercedes smíðaði svo góða vél að þeir skyldu alla aðra eftir. Ég get ekki séð hvernig önnur lið ættu að ná þeim á næstunni. Það gæti tekið þrjú ár. Við höfum ekki efni á að bíða í þrjú ár, né tvö eða eitt ár,“ sagði Ecclestone að lokum.


Tengdar fréttir

Rosberg: Lewis var besti ökumaðurinn í ár

Nico Rosberg átti möguleika fyrir keppnina á að verða heimsmeistari. Strax í upphafi varð möguleikinn þó lítill eftir frábæra ræsingu Lewis Hamilton. Vélavandræði gerðu svo endanlega út um möguleika Rosberg.

Hamilton: Besti dagur lífs míns

Lewis Hamilton er heimsmeistari ökumanna 2014. Hann náði titlinum í annað sinn eftir að hafa orðið heimsmeistari árið 2008. Hann lýsti deginum í dag sem besta degi lífs síns.

20 Formúlu 1 keppnir 2015

Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Ecclestone: Ég stjórna Formúlu 1 ennþá

Bernie Ecclestone, oft kallaður einráður Formúlu 1 segir að hann sé enn við stjórnartauma íþróttarinnar. Hann segist þó hafa áætlun um eftirmann sinn.

Honda má eftir allt þróa sína vél

Aðrir vélaframleiðendur höfðu fengið leyfi til að þróa sína vél á komandi tímabili. Nú má Honda taka þátt í þróunarstríðinu.

Hamilton stefnir á sjö ár í viðbót

Lewis Hamilton segist vilja vera sjö ár í viðbót í Formúlu 1. Ef honum tekst ætlan sín þá er ferill hans í Formúlu 1 hálfnaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×