Enski boltinn

Eboue æfir með Sunderland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fáum við að sjá Eboue aftur í ensku úrvalsdeildinni?
Fáum við að sjá Eboue aftur í ensku úrvalsdeildinni? vísir/getty
Emmanuel Eboue, fyrrverandi leikmaður Arsenal, æfir þessa dagana með Sunderland.

Eboue, sem er 32 ára, hefur verið án félags síðan samningur hans við Galatasary rann út í sumar.

Fílbeinsstrendingurinn fær að mæta á æfingar hjá Sunderland til að halda sér í formi en svo gæti farið að félagið myndi semja við hann til að auka breiddina hjá sér í stöðu hægri bakvarðar.

Eboue lék 214 leiki fyrir Arsenal á árunum 2005-11 og skoraði í þeim 10 mörk. Eboue fór svo til Galatasary þar sem hann var í fjögur ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×