Innlent

Ebba Guðný um mál Pistorius: „Ég vissi að hann væri að segja satt“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Ebba Guðný segir ekki gott að ákveðið hafi verið að sjónvarpa beint frá réttarhöldum Oscars. Þar með hafi þau orðið að sápuóperu.
Ebba Guðný segir ekki gott að ákveðið hafi verið að sjónvarpa beint frá réttarhöldum Oscars. Þar með hafi þau orðið að sápuóperu. Vísir/Ernir
Ebba Guðný Guðmundsdóttir er vinkona suðurafríska spretthlauparans Oscars Pistorius og hefur hann reynst fjölskyldu Ebbu afar vel.

Dómari mun tilkynna um refsingu Pistorius 13. október, en hann var fundinn sekur um manndráp af gáleysi í gær.

Pistorius varð unnustu sinni, að bana á heimili sínu í Pretoríu í febrúar í fyrra. Pistorius gæti átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist. 

Pistorius var ellefu mánaða þegar báðir fætur hans voru fjarlægðir fyrir neðan hné vegna sjaldgæfs fæðingargalla, en sperrileggi vantaði í báða fætur hans. Það sama á við um son Ebbu, Hafliða, og þannig kynntust fjölskylda Ebbu og Pistorius, sem Ebba segir mikilvæga fyrirmynd fyrir Hafliða.

„Ég held að aðalmálið fyrir Oscar og alla sem þykir vænt um hann sé að sannanir hafi leitt í ljós að hann var, alveg frá upphafi, að segja satt og rétt frá. Það er hræðilegt að þurfa að sitja undir því að hafa drepið einhvern viljandi, það er alveg nóg að bögglast við að reyna að lifa með því að hafa valdið dauða einhvers óviljandi,“ segir Ebba Guðný.

Margir lifa í ótta

„Ég vissi um leið og ég heyrði hvað gerðist að hann væri að segja satt. Þetta er ekkert einsdæmi í Suður-Afríku þó margir tali þannig. Við höfum búið þarna fjölskyldan. Það gerist alltof oft að fólk drepur maka eða fjölskyldumeðlim í misgripum fyrir innbrotsþjóf.

Margir lifa í ótta og fréttir af fólskulegum árásum tröllríða miðlum þar ytra. Það er alltaf verið að ala á ótta, ótti selur, því miður. Fólki, sem er viðkvæmt eða ber eins og Oscar – fótalaus, frægur og ríkur, hættir til að taka svona fréttir mjög inn á sig og verða mjög hrætt.

Mjög margir eiga byssur og sofa með byssur jafnvel. Frægt er annað mál þar ytra þar sem faðir skaut unglingsdóttur sína er hún var að koma heim,“ útskýrir Ebba Guðný og bætir við að nokkur svipuð mál hafi komið upp á meðan dómsmál Oscars var í gangi.

„Hvað Oscar varðar þá er hann alinn upp í ótta ef svo má segja. Mamma hans skildi við pabba hans þegar hann var bara 6 ára gamall. Hún var ein með börnin sín mikið og alltaf hrædd, svaf til að mynda með byssu. Þetta hefur áhrif á börn, þau taka inn á sig óöryggi og ótta foreldra sinna. Það þarf engan sálfræðing til að fatta það. Þar að auki hefur hann orðið fyrir ofbeldi sjálfur og orðið vitni að hræðilegu ofbeldi. Þetta allt setur mark sitt á fólk.“

Beðin um að lýsa Oscari segir Ebba: ,,Hann er ljúfur og indæll, kurteis, hugrakkur, skemmtilegur og fylginn sér.“

Ebba segir ekki hægt að neita því að lögreglan hefði getað staðið betur að rannsókninni og upplýsingagjöf strax í byrjun.

„Við réttarhöldin komu í ljós ýmsir vankantar á vinnubrögðum og viðbrögðum lögreglu. Þar að auki láku upplýsingar frá lögreglunni á netið. En hættan er líka meiri þegar sakborningur er fræg persóna. Þegar ég var úti í nokkrar vikur þá mætti ég í dómsalinn alla dagana. Ég tek ofan fyrir Masipa og hjálparmönnum hennar. Mér finnst dómurinn mjög sanngjarn, hún heldur sig algjörlega við staðreyndir, sannanir og lögin. Flækist ekki vitundarögn í tilfinningum eða einhverju sem á ekkert erindi inn í dómsal. Hún er góð fyrirmynd.“

Réttarhöldin eins og sápuópera

Aðspurð segir Ebba Guðný ekki gott að ákveðið hafi verið að sjónvarpa beint frá réttarhöldunum.

„Ég held að ókostirnir verði ofan á. Réttarhöldin verða eins og sápuópera þar sem fólk gerir ekki greinarmun á raunveruleika og leiknu efni og um leið missir það alla samhygð og skilning. Það er aldrei gott.

Mér hefur almennt þótt hræðilegt að fylgjast með umfjöllun málið. Þarna gerist hræðilegt slys. Enginn veit það betur en Oscar og foreldrar Reevu. Fólk hleypur upp til handa og fóta með allskyns sleggjudóma og fordóma án þess að vita nokkuð um málsatvik, án þess að vita neitt um Suður-Afríku, án þess að vita nokkuð um Oscar og hans líf, án þess að vita neitt. En þetta er ekkert einsdæmi. Svona er þetta. Mannlegur breyskleiki.

Ég hef lært mikið á þessu öllu sem ég hefði viljað læra öðruvísi. Ég hef alveg stundum hugsað mitt er ég hef lesið fyrirsagnir blaðagreina varðandi önnur mál, hugsað mitt og dæmt í hljóði án þess að vita nokkuð, ég mun ekki gera það framar. Fréttamennska, sérstaklega á netinu, gengur því miður alltof mikið fram á að kasta fram breiðum og villandi fyrirsögnum. Margir lesendur kynna sér málið ekkert lengra en fyrirsögnin nær. Fjölmargar rangar fyrirsagnir og greinar hafa verið birtar varðandi þetta mál og Oscar ekki í neinni aðstöðu til að verja sig.

Mér finnst þessi setning Voltaire ansi góð: „It is better to risk saving a guilty person than to condemn an innocent one.“

En hvað hugsar Ebba þegar hún heyrir að hann gæti setið inni í allt að fimmtán ár?

„Ég ætla að bíða með að hafa áhyggjur af því þangað til refsingin er ákveðin og gefin upp. Ég ber fullt traust til Masipa, líkt og Oscar og fjölskylda hans, að hún verði réttlát fyrir alla aðila. Aðalmálið núna er að eftir að vandlega er búið að kryfja málið til mergjar, að vitnisburður Oscars var í algjöru samræmi við sannanir.“

Vinirnir saman á góðri stundu.Vísir/Úr einkasafni
Atburðarás:

22. nóvember 1986

Oscar Carl Pistorius fæðist í Jóhannesarborg. Hann var ellefu mánaða þegar báðir fætur hans voru fjarlægðir fyrir neðan hné vegna sjaldgæfs fæðingargalla, en sperrileggi vantaði í báða fætur hans.

2002

Móðir Oscars, Sheila Pistorius, deyr af völdum læknamistaka.

2007

Pistorius hóf að keppa gegn ófötluðum á alþjóðlegum mótum víða um heim. Fljótlega fóru að heyrast gagnrýnisraddir. Héldu menn því fram að blöðkufæturnir veittu honum forskot á aðra keppendur. Var honum í kjölfarið bannað að hlaupa á gervifótunum gegn ófötluðum íþróttamönnum og draumur hans um að keppa á Ólympíuleikunum í Peking 2008 varð að engu.

Desember 2007

Pistorius hlaut verðlaun frá BBC sem íþróttamaður ársins fyrir hugrekki og afrek sín þrátt fyrir mótlæti.

Maí 2008

Keppnisbanninu var aflétt rétt fyrir leikana í Peking, eftir áfrýjun Pistorius, en það var of seint. Þess í stað keppti hann á Ólympíumóti fatlaðra og vann þar til þrennra gullverðlauna.

Ágúst 2012

Pistorius varð fyrsti fótalausi íþróttamaður sögunnar til að keppa á Ólympíuleikum.

September 2012

Keppti á Ólympíuleikum fatlaðra í London, þar sem hann vann til tvennra gullverðlauna.

14. febrúar 2013

Pistorius er handtekinn á heimili sínu í Pretoríu fyrir morðið á Reevu Steenkamp, kærustu sinni.

15. febrúar 2013

Pistorius er leiddur fyrir dómara þar sem hann brotnar niður þegar honum er tilkynnt að ákæruvaldið hyggist sækja hann til saka fyrir morð að yfirlögðu ráði.

17. febrúar 2013

Umboðsmaður Pistorius segir að hætt hafi verið við alla dagskrá hans svo hann hafi svigrúm til þess að einbeita sér að réttarhöldunum.

19. febrúar 2013

Útför Reevu Steenkamp fer fram í Port Elizabeth. Sama dag kemur Pistorius fyrir dómara í aðdraganda réttarhaldanna. Saksóknari í málinu segir Pistorius hafa skotið fjórum skotum í gegnum baðherbergishurð, og þrjú þeirra hafi farið í Steenkamp. Lögfræðingar Pistorius lesa yfirlýsingu frá honum þar sem hann segist hafa haldið að kærasta sín væri innbrotsþjófur.

22. febrúar 2013

Dómarinn Desmond Nair lætur hann lausan gegn milljón randa tryggingu. Skilyrðin eru að hann láti af hendi vegabréf sitt og öll vopn.

11. mars 2013

Lögfræðingar hlauparans áfrýja því að honum séu sett skilyrði fyrir því að vera látinn laus gegn tryggingu.

28. mars 2013

Skilyrðin eru milduð af æðra dómstigi, þannig að hann má ferðast til þess að taka þátt í alþjóðlegum mótum, þótt ekkert verði úr því þegar til kastanna kemur.

19. ágúst 2013

Steenkamp hefði orðið þrítug. Pistorius er fyrir rétti hjá dómaranum Desmond Nair til þess að hlýða á formlega ákæru. Hann er ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði og fyrir að hafa í fórum sínum byssuskot án leyfis. Ríkið birtir mögulegan vitnalista, en á honum eru 107 nöfn.

14. febrúar 2014

Ár frá dauða Steenkamp. Pistorius sendir kveðju á opinbera heimasíðu Steenkamp og segir engin orð fá lýst tilfinningum sínum þegar hann hugsi til slyssins.

25. febrúar 2014

Dómarinn Dunstan Mlambo veitir leyfi til þess að sjónvarpa hluta réttarhaldanna og taka upp.

3. mars 2014

Réttarhöld í málinu hefjast í Pretoríu og eiga að takaþrjár vikur samkvæmt dagskrá.



Vísir/Getty


10. mars 2014


Pistorius kastar upp, aftur og aftur, í réttarsalnum eftir að hafa heyrt grafískar lýsingar á sárum sem leiddu Steenkamp til dauða.

11. mars 2014

Fyrrverandi kærasta Pistorius, Samantha Taylor, ber vitni í réttarhöldunum. Hún segir frá því þegar Pistorius, í bræðiskasti, hleypti skoti af byssu í gegnum þaklúgu á bíl eftir að hafa verið stoppaður af lögreglu í september 2012.

24. mars 2014

Sms milli Steenkamp og Pistorius eru lesin við réttarhöldin. Hún lýsir því hvernig hún var hrædd við hann – „Ég er hrædd við þig stundum og hvernig þú snöggreiðist.“

8. apríl 2014

Pistorius kúgast í réttarsalnum þegar hann lýsir því hvernig hann skaut Reevu.



Vísir/Getty


14. apríl 2014


Aðdáendur Pistorius, þekktir sem Pistorians, standa fyrir utan réttarhöldin og styðja sinn mann með skiltum. Aðrir báðu fyrir honum. Síður voru settar upp á samfélagsmiðlum honum til stuðnings.

15. apríl 2014

Suður-afrískt dagblað segir frá því að Pistorius hafi sést á djamminu og a daðra við konur í Jóhannesarborg á meðan hann var laus úr varðhaldi. Pistorius neitaði að hafa gert  það.

12. maí 2014

Sérfræðingur segir Oscar haldinn kvíðaröskun. Réttarhöldunum er frestað.

30. júní 2014

Eftir sex vikna hlé er það einróma álit sálfræðinga og geðlæknis að Pistorius sé ekki haldinn geðsjúkdómi.

2. júlí 2014

Skýrsla er lesin í réttarsalnum sem segir Pistorius alvarlega þunglyndan og líklegan til þess að fremja sjálfsvíg. Skýrslan mælir með að hann sé settur í læknishendur.

8. ágúst 2014

Réttarhöldin klárast og ákveðið að dómur falli þann 11. September.

11. september 2014

Dómarinn Thokozile segir að ekki hafi tekist að sanna það að suður-afríski spretthlauparinn hafi myrt unnustu sína að yfirlögðu ráð og sýknar hann í þeim ákærulið. Hún frestar úrskurði þar til daginn eftir. 

12. september 2014

Pistorius fundinn sekur um manndráp af gáleysi. Dómari mun tilkynna um refsingu Oscars Pistorius þann 13. október.

Vísir/Getty

Tengdar fréttir

„Stundum er ég hrædd við þig“

Farið var í gegnum farsíma Oscars Pistorius og unnustu hans Reevu Steenkamp, sem hann skaut til bana á Valentínusardag í fyrra.

Vonast til þess að hann fái að keppa

Helgi Sveinsson vonast til þess að Marcus Rehm sem er með gervifót frá Össuri fái keppnisrétt á Evrópumótinu sem fer fram í Zurich í haust en efasemdir hafa verið um hvort veita ætti honum keppnisrétt eftir að hann náði viðmiðinu um helgina.

Vitni segist hafa heyrt rifrildi

„Ég spurði eiginmann minn hver það væri sem öskraði svona og hann sagðist halda að það væri Oscar.“

Pistorius aftur í réttarsalinn

Í dag hefjast réttarhöld yfir hinum suðurafríska Oskar Pistoriusi, einfætta hlauparanum, aftur eftir tveggja vikna hlé.

Össur hættir að styrkja Pistorius

Stoðtækjaframleiðandinn Össur hf. hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við suðurafríska spretthlauparann Oscar Pistorius, en réttað er yfir honum þessa dagana í Suður-Afríku vegna gruns um morð.

Fyrstu viku réttarhaldanna yfir Pistorius lokið

Pistorius er ákærður fyrir að hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp, en hann skaut hana í gegnum lokaða baðherbergishurð á heimili sínu í Pretoríu í Suður-Afríku í febrúar á síðasta ári. Hann segist hafa haldið að hún væri innbrotsþjófur.

Dómur kveðinn yfir Pistoriusi

Pistorius á yfir höfði sér 25 ára fangelsi verði hann fundinn sekur um morð að yfirlögðu ráði.

Réttarhöldum yfir Pistorius frestað til morguns

Fréttaskýrendur segja allt benda til þess að suður-afríski spretthlauparinn verði fundinn sekur um manndráp af gáleysi þó að dómarinn hafi enn ekki tekið slíkt fram svart á hvítu.

Grátköst Pistoriusar sögð ekta

Félagsráðgjafi sem aðstoðað hefur suðurafríska spretthlauparann Oscar Pistorius bar vitni í réttarsal í Pretoríu í dag.

Dómsuppkvaðningu frestað til morguns

Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius var í dag sýknaður af ákæru um að hafa myrt unnustu sína af yfirlögðu ráði. Á morgun kemur í ljós hvort hann verður dæmdur fyrir manndráp af gáleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×