Viðskipti innlent

Easyjet bætir við flugleiðum

Haraldur Guðmundsson skrifar
EasyJet flýgur til 134 áfangastaða í heiminum.
EasyJet flýgur til 134 áfangastaða í heiminum. Nordicphotos/AFP
Breska flugfélagið EasyJet ætlar að bæta tveimur flugleiðum við áætlunarkerfi félagsins til og frá Íslandi næstkomandi mánudag og bjóða þá flug til Gatwick-flugvallar í London og Genfar.

EasyJet ætlar einnig að hefja reglulegt flug milli Belfast og Íslands þann 12. desember.

Félagið mun þá fljúga til átta áfangastaða frá Íslandi og áætlar að flytja um fjögur hundruð þúsund farþega á ári í þeim ferðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×