Bílar

e-Golf slær í gegn í Noregi

Finnur Thorlacius skrifar
Gríðarlegur áhugi er fyrir rafbílum í Noregi. Auk mikillar vitundarvakningar um umhverfisáhrif rafbíla eru ívilnanir vegna rafbílakaupa mjög hagstæðar, en eins og á Íslandi eru hvorki vörugjöld né virðisaukaskattur lagður á rafbíla. Einnig hefur reynsla rafbílaeigenda verið mjög góð og er því stundum haldið fram að rafbílaeigendur séu sjálfir bestu sölumenn rafbíla.

Sala rafbíla í Noregi er einstök í Evrópu, en 1 af hverjum 3 rafbílum sem seldust í Evrópu á árinu 2014 voru seldir í Noregi.Á síðastliðnu ári tvöfaldaðist rafbílasalan í Noregi frá árinu á undan, en seldir voru yfir 18.000 rafbílar til einkanota. Þetta jafngildir 12,5% af heildarbílasölu ársins, en til samanburðar var hlutfall rafbíla 5,5% af seldum bílum árið 2013.

Enn er þó nokkuð í land með að markmið norsku ríkisstjórnarinnar um að 20-30% hluti bílasölunnar séu rafbílar eða tvíorkubílar náist, ogþÞví má reikna með áframhaldandi mikilli áherslu næstu árin á að gera leið rafbíla greiða inn á norskan bílamarkað.

Frábærar viðtökur e-Golf í Noregi

Árið 2014 varð einnig ár Volkswagen Golf Í Noregi var, en þar seldust tæplega 10.000 VW Golf, sem er tæplega 7% af öllum seldum bílum til einkanota. Hér hafði innkoma e-Golf sterk áhrif, en bíllinn hefur hlotið mjög góðar viðtökur norskra bílakaupenda. Góð sala e-Golf og e-up! varð til þess að Volkswagen var söluhæsta vörumerkið með rafbíla til einkanota á arinu 2014.

Góður árangur Volkswagen heldur áfram árið 2015, en í janúar var tæplega helmingur allra seldra rafbíla e-Golf, en afhentir voru tæplega 900 e-Golf í mánuðinum. Það er því óhætt að segja að e-Golf hafi tekið væna forystu á rafbílamarkaðinum í Noregi.

e-Golf kominn til Íslands

Fyrstu Volkwagen e-Golf bílarnir voru afhentir íslenskum kaupendum í síðasta mánuði.  Árni Þorsteinsson sölustjóri Volkwagen hjá Heklu segir  að fjölmargir hafi reynsluekið bílnum frá því að hann var kynntur á Íslandi og viðtökurnar séu afar jákvæðar.  Það sem kemur fólki helst á óvart séu snerpan, hljóðlátur akstur, tæknin og þægindin í VW e-Golf.

Árni telur að margar ástæður séu  fyrir vinsældum e-Golf í Noregi.  Bílinn byggir á 40 ára reynslu Volkswagen með Golf. Helstu breytingarnar sem e-Golf eigandi upplifir í akstri er fullkomnlega hljóðlátur akstur í bíl með gríðarlegri snerpu og aðeins einum drifgír. Rafhlaðan í bílnum er sérlega endingargóð en Volkswagen veitir 8 ára ábyrgð á rafhlöðunni sem er hönnuð til að taka sem minnst pláss.

Akstursdrægni bílsins er allt að 190 km, sem gerir e-Golf að bíl sem hentar akstursþörfum langflestra.  Árni segir þetta henta Íslendingum afar vel, enda sé meðalakstur Íslendinga undir 40 km á dag. Hægt er að reynsluaka Volkswagen e-Golf og e-up! hjá Heklu og minnir Árni á að ekkert  jafnist á við prófa af eigin raun.






×