Fótbolti

Dýrlingarnir lögðu Inter | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Southampton kom til baka og vann 2-1 sigur á Inter í Evrópudeildinni í kvöld.

Dýrlingarnir voru sterkari aðilinn í leiknum en lentu undir á 33. mínútu þegar Mauro Icardi, fyrirliði Inter, skoraði.

Southampton fékk vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks en Samir Handanovic varði frá Dusan Tadic.

Heimamenn tryggðu sér svo sigurinn með tveimur mörkum um miðjan seinni hálfleik. Virgil van Dijk jafnaði metin á 64. mínútu og sex mínútum síðar skoraði Yuto Nagatomo sjálfsmark. Lokatölur 2-1, Southampton í vil.

Southampton er í 2. sæti K-riðils með sjö stig, tveimur stigum á eftir Sparta Prag. Inter er hins vegar á botni riðilsins með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×