Enski boltinn

Dýrlingarnir fara með eins marks sigur á Anfield | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nathan Redmond tryggði Southampton 1-0 sigur á Liverpool í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins í kvöld.

Dýrlingarnir fara því með naumt forskot í seinni leikinn sem verður á Anfield miðvikudaginn 25. janúar.

Redmond skoraði eina mark leiksins á 20. mínútu. Hann slapp þá í gegn eftir sendingu Jays Rodríguez og mistök Ragnars Klavan í vörn Liverpool og skoraði af öryggi. Skömmu áður hafði Loris Karius varið frá Redmond úr dauðafæri.

Liverpool var mun meira með boltann í leiknum en það voru heimamenn sem fengu bestu færin. Í seinni hálfleik skaut Cédric Soares í hliðarnetið úr úrvalsfæri og Redmond skaut í slána. Þessi glötuðu tækifæri gætu komið Southampton í koll.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, setti Philippe Coutinho inn á í seinni hálfleik en allt kom fyrir ekki. Southampton hélt út og landaði 1-0 sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×