Fótbolti

Dýrlinganna bíður úrslitaleikur í lokaumferðinni | Inter úr leik | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Southampton fór í fýluferð til Tékklands en liðið tapaði 1-0 fyrir Spörtu Prag í K-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld.

Costa Nhamoinesu skoraði eina mark leiksins á 11. mínútu.

Dýrlingarnir eru í 2. sæti riðilsins en þeir mæta H. Beer Sheva í hreinum úrslitaleik um sæti í 64-liða úrslitunum í lokaumferð riðlakeppninnar eftir tvær vikur.

H. Beer Sheva vann 3-2 sigur á Inter í hinum leik riðilsins í kvöld. Ítalska stórliðið er þar með úr leik.

Inter komst í 0-2 eftir 25 mínútna leik en Ísraelarnir sneru dæminu sér í vil í seinni hálfleik. Ben Sahar skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×