Heilsa

Dýrindis súkkulaðimús

Rikka skrifar

Björg Ingadóttur, fatahönnuður og eigandi Spakmannsspjara, kom í heimsókn til Heilsugengisins í þætti þess sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. Solla Eiríks bjó til fyrir hana þessa dýrindis súkkulaðimús sem er sérstök fyrir það að vera búin til úr lárperum en ekki rjóma eins og þessi hefðbundna. Það er því hægt að njóta þessarar án samviskubits.

Súkkulaðimús með lárperu



1 lárpera, afhýdd og steinhreinsuð

1 banani, afhýddur og skorinn í sneiðar

1 msk. kókospálmasykur

1 msk. vanilluduft

¼ tsk. sjávarsalt

5 msk. kakóduft

½-¾ bolli sæta, t.d. sunroot eða hlynsýróp

Ávextir ofan á:

½ hunangsmelóna, eða önnur melóna, skorin í litla ferninga

2 mandarínur, afhýddar og skornar í litla bita

¼ rauður chilipipar, smátt saxaður

safi og rifinn börkur af 1 sítrónu

Setjið allt saman í matvinnsluvél og vinnið vel saman eða þar til blandan er orðin silkimjúk. Setjið músina í falleg glös og kælið. Blandið ávöxtunum saman í skál og setjið 3-4 msk. ofan á hvern skammt af súkkulaðimúsinni.


Tengdar fréttir

Bráðhollt og bragðgott rauðrófusalat

Í síðasta þætti af Heilsugenginu var Halldóra Sigurdórsdóttir heimsótt, en hún var sárþjáð af vefjagigt og öðrum kvillum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×